Ósátt við framgöngu íslenskra stjórnvalda 16. júní 2007 19:19
Fjölskylda breskra hjóna sem létust í bílslysi á Íslandi í ágúst 2005 er afar ósátt við framgöngu íslenskra yfirvalda í málinu. Dánardómstjóri á Englandi hefur óskað eftir gögnum um af hverju mál gegn bílstjóra annars bíls í slysinu var fellt niður, en rannsókn sýndi að hjólbarðar hans voru ekki í lagi. Hjónin Julie og Benedict Taylor frá Glastonbury í Bretlandi voru á ferðalagi um Austurland og létust þegar bílaleigubíll þeirra lenti í árekstri við flutningabíl. Atvikið átti sér stað á þjóðveginum undir Hallormsstað þann 9. ágúst árið 2005. Enska blaðið Western Gazette greindi frá því í fyrradag að aðstandendur hjónanna hefðu óskað eftir því að dánadómsstjóri í Somerset færi fram á frekari upplýsingar frá yfirvöldum hér. Rannsókn leiddi í ljós að of mikið loft hefði verið í fremri hjólbörðum vörubílsins en um 50 prósent of lítið í afturhjjólunum. Samkvæmt því var bremsuhæfni flutningabíllisins einungis um fjörtíu prósent. Blaðið greinir frá því að vörubíllinn hafi farið yfir á vitlausan vegarhelming í beygju, en reynt að forðast árekstur við bíl hjónanna með þeim afleiðingum að hann valt. Ekkert fannst hins vegar að bíl hjónanna. Hætt var við ákæru á hendur ökumanninum þar sem sannanir þóttu ekki nægar til að sakfella hann. Þegar fjölskyldan mótmælti var eins mánaðar kærufrestur liðinn. Á því tímabili höfðu hins vegar engar upplýsingar verið gefnar út um málið á ensku, margir mánuðir hefðu liðið þangað til það var gert. Meðal þess sem óskað er eftir eru upplýsingar frá yfirheyrslu bílstjóra flutningabílsins og ljósmynda frá slysstað. Ekki náðist í forráðamenn Rannsóknarnefndar umferðarslysa vegna málsins. Lárus Bjarnason sýslumaður á Seyðisfirði segir gagnrýni aðstandenna snúa að því kerfi sem er við lýði hér, en í Bretlandi gildi aðrar reglur. Í þessu tiltekna máli hafi ákvörðun niðurfellingu verið send breska sendiráðinu, á íslensku, um leið og hún var tekin. Ákvörðunin byggði á rannsókn, krufningu og öðrum gögnum.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sjá meira