Aldrei fleiri brautskráðir frá Háskóla Íslands 16. júní 2007 18:30
Aldrei hafa fleiri verið brautskráðir í einu frá Háskóla Íslands en á annað þúsund kandídatar útskrifuðust þaðan í dag. Kennaraháskólinn brauðskráði einnig 476 kandídata í dag en þessir skólar verða sameinaðir á næsta ári. Hafist verður handa við byggingu vísindagarða háskólans næsta haust. Á annað þúsund kandídatar tóku við skírteinum sínum úr hendi Kristínar Ingólfsdóttur rektors Háskóla Ísland við brautskráningu Háskólans, sem fram fór í dag í Laugardalshöll. Hartnær 400 útskrifast með meistaragráðu eða diplóma-nám á meistarastigi, og nærri 700 með BS eða BA gráðu. Átta kandídatar útskrifast með fleiri en eina prófgráðu. Flestir útskrifast frá félagsvísindadeild eða 287 talsins. Í dag voru í fyrsta sinn brautskráðir kandídatar úr meistaranámi í verkefnisstjórnun frá verkfræðideild. Þá útskrifaði lagadeild nú í fyrsta skipti meistaranema með sérstakar áherslur í sínu námi. Í ræðu sinni lagði Kristín Ingólfsdóttir, háskólarektor, áherslu á stöðu Háskólans ekki síst í þeim verkefnum að skila þekkingu til samfélagsins. Hún fjallaði einnig um nýbirta úttekt Ríkisendurskoðunar og sagði niðurstöðuna ánægjulega fyrir Háskóla Íslands. Kristín nefndi fyrirhugaða sameiningu Háskólans og Kennaraháskólans í ræðu sinni í öflugan 14 þúsund manna háskóla, sem yrði einn af grundvallarþáttum í uppbyggingu íslensks skólakerfis. Alþingi hefur ákveðið að Kennaraháskóli Íslands og Háskóli Íslands sameinist í einum háskóla þann 1. júlí á næsta ári. Kennarháskólinn útskrifaði einnig nemendur í dag en þeir voru hátt á fimmta hundrað. Ólafur Proppé rektor, rektor Kennarháskólans, talaði um fjarnám í sinni ræðu og sagði mikilvægt markmið sameinaðs Háskóla Íslands að efla fjarnám og önnur sveigjanleg námsform til að koma betur til móts við nemendur hvar sem þeir búa og hvernig sem aðstæður þeirra eru að öðru leyti. Kristín Ingólfsdóttir tók fyrir sömu mál í sinni ræðu og talaði um stórsókn í fjarkennslu í framhaldi af sameiningu skólanna tveggja. Meira en helmingur stúdenta við Kennaraháskólann hefur stundað fjarnám þar í vetur. Þeir búa í nærri öllum landshlutum og í mörgum löndum utan Íslands. Stór hluti þeirra sem voru brautskráðir frá Kennarháskólanum í dag voru í þeirra hópi.
Mest lesið Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Erlent Fleiri fréttir Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Sjá meira