Mikill viðbúnaður vegna Menningarnætur 17. ágúst 2007 12:35
Slökkvilið, lögregla og björgunarsveitir hafa töluverðan viðbúnað vegna Menningarnætur sem fram fer á laugardag. Lögregla mun taka sérstaklega hart á unglingadrykkju. Að venju er búist við að miklum mannfjölda í miðborg Reykjavíkur á laugardag þegar Menningarnótt verður sett. Aðgerðastjórn almannavarna á höfuðborgarsvæðinu sér um að samræma öryggismálin og verða viðbragðsaðilar með sameiginlega bækistöð og útkallslið við menntamálaráðuneytið við Arnarhól. Þar verða sjúkra-, slökkvi- og lögreglubílar ásamt sjúkraskýli og aðstöðu til að annast týnd börn. Þá verður slysadeild Landspítalans með aukaviðbúnað þegar líður á kvöldið og nóttina, sambærilegt við það skipulag sem er á gamlárskvöldi. Fjölmörgum götum verður lokað, annars vegar í tengslum við Reykjavíkurmaraþon og hins vegar Menningarnótt og stórtónleika á Miklatúni. Umferðardeild lögreglunnar mun sinna eftirliti með lokun gatna og hvetur lögregla almenningi til þess að sýna lipurð og þolinmæði í umferðinni því búast megi við töfum. Menningarnótt lýkur eins og undanfarin ár með flugeldasýningu og verða umferðarljós á Sæbraut, Hringbraut, Miklubraut og Bústaðavegi tekin úr sambandi að henni lokinni og þá mun lögregla stjórna umferð. Lögreglan vill brýna það sérstaklega fyrir foreldrum að skilja börn sín ekki eftir í miðbænum þegar dagskránni lýkur með flugeldasýningu. Lögreglan mun taka mjög hart á drykkju unglinga og vonast eftir góðri liðveislu foreldra í því. Tvö ungingaathvörf verða í bænum á laugardag, annað í Foreldrahúsi að Vonarstræti 4b og hitt í íþróttahúsi Kennaraháskólans. Þau verða opin frá miðnætti, eða fyrr ef þurfa þykir, og fram eftir nóttu.
Mest lesið Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Gestum komið fyrir á öðru hóteli Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira