Talningarfólk á kosninganótt hefur enn ekki fengið greitt 17. ágúst 2007 14:05 Ríkarður Másson sýslumaður: Ákaflega bagalegt að greiðslurnar hafa ekki borist.
Talningafólk á kosninganótt í Norðvesturkjördæmi hefur enn ekki fengið greitt fyrir vinnu sína þótt þrír mánuðir séu liðnir frá síðustu alþingiskosningum. "Þetta er því miður rétt og ákaflega bagalegt," segir Ríkarður Másson sýslumaður á Sauðárkrók en hann er aðalmaður í yfirkjörstjórn kjördæmisins. "Hér er um úrvalsfólk að ræða og margt þeirra hefur unnið fyrir okkur í mörgum kosningum. Svo virðist sem upplýsingar um greiðslur til þessara einstaklinga séu týndar í kerfinu. Ríkarður Másson segir að upplýsingar um greiðslur til talningafólksins hafi farið næstum samdægurs frá yfirkjörstjórn til dómsmálaráðuneytisins. Frá ráðuneytinu áttu upplýsingarnar svo að berast Fjársýslu ríkisins til útborgunnar. Ríkarður segir að hann hafi haft samband við Fjársýslu ríkisins vegna málsins en ekki fengið skýr svör um málið. Er Vísir hafði samband við Fjársýsluna var sagt að svo virtist sem upplýsingarnar hafi ekki borist frá ráðuneytinu. Og ekki hafi tekist að fá nánari skýringar á því þar sem viðkomandi starfsmaður dómsmálaráðuneytisins væri í sumarfríi. Einn þeirra talningarmanna sem Vísir hafði samband við, og vann þessa nótt segir málið allt hið furðulegasta. Þetta hafi verið ein lengsta nóttin af öllum talningarstöðum á landinu eða frá því kl. 19 að kvöldi og framundir kl. 9 næsta morgun. Upphæðin væri kannski ekki ýkja há en það væri fyrir neðan allar hellur að bíða í þrjá mánuði eftir að fá hana.
Mest lesið Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Gestum komið fyrir á öðru hóteli Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira