Innlent

Vilhelm Þorsteinsson EA aflahæsta skipið

MYND/365

Fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA, frá Akureyri var aflahæsta fiskiskip flotans á nýliðnu fiskveiðiári. Heildaraflinn var um 60 þúsund tonn, sem er 12 þúsund tonna meiri afli en næsta skip fékk, sem er Börkur NK frá Neskaupstað.

Aflinn var aðallega síld,kolmunni og makríll. Þetta er rúmlega sjöfalt meiri afli en aflahæsti togarinn fékk, en það er Málmey SK , sem veiddi tæp átta þúsund tonn af bolfiski. Ekki liggur fyrir samanburður á aflaverðmæti skipanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×