Innlent

Var svo miður sín vegna taps að hann gat ekki ekið

MYND/Hörður

Lögregla hafði í nógu að snúast í gærkvöld eftir sigur AC Milan á Liverpool í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Þannig var lögregla kölluð að veitingahúsi á höfuðborgarsvæðinu þar sem fáeinir eldheitir Púlarar höfðu brotið glös í bræði sinni þegar úrslitin lágu fyrir. Enginn var þó handtekinn.

Á öðru veitingahúsi fóru aðdáendur AC Milan fram úr sjálfum sér í gleðilátum og kom til ryskinga. Engan sakaði.

Í miðborginni höfðu lögreglumenn svo afskipti af stuðningsmanni Liverpool eftir ábendingu frá vegfaranda. Sá hafði setið sem fastast í bílnum sínum í dágóða stund og var jafnvel talið að hann væri sofandi eða í annarlegu ástandi. Svo var þó ekki og sagðist hann einfaldlega ekki treysta sér til að aka áfram því hann væri svo miður sín vegna taps Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×