Slysum og tjónum fjölgar hjá erlendum ökumönnum 31. júlí 2007 18:57
Umferðarslysum hefur fækkað hjá Íslendingum en fjölgað meðal útlendinga. Erlendir ökumenn fara líka miklu hraðar um þjóðvegina en Íslendingar og gera sér litla grein fyrir slysahættu og háum sektarúrræðum. Sérstakt átak er hafið sem miðar að því að fræða erlenda ökumenn um hættuna sem fylgir því að aka á þjóðvegum landsins. Í fyrsta sinn verða sett upp sérstök skilti á þjóðvegina á ensku sem ætlað er að draga úr slysum og óhöppum þegar erlendir ökumenn fara af bundnu slitlagi yfir á mölina. Á þessu ári hafa útlendingar lent í 738 óhöppum og meira en 150 hafa slasast í þessum óhöppum. Um 5 þúsund bílaleigubílar eru nú á götum í þéttbýli og á þjóðvegunum og hafa tryggingafélögin og eigendur bílaleiga þungar áhyggjur af fjölgun óhappa sem tengjast útafakstri erlendra ökumanna. Þá virðist sem erlendir ökumenn aki ósjaldan hraðar en lög leyfa og fari langt fram úr Íslendingum að því leyti. Mörgum þeirra er brugðið þegar þeir þurfa að greiða hraðasektirnar. Einar Magnús Magnússon upplýsingafulltrúi Umferðarstofu segir að mikilvægt sé að erlendir ökumenn fái ýtarlegar upplýsingar um hraðasektir hér á landi. Umferðarstofa hefur bætt sérstökum lið inn á heimasíðu sína sem sýnir nákvæmlega hvað ökumenn þurfa að greiða gerist þeir sekir um hraðakstur. Þessi gögn verða einnig sett fram á erlendum tungumálum til að upplýsa erlenda ökumenn um sektarúrræði á Íslandi.
Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Fleiri fréttir Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Sjá meira