Vonast eftir að viðræður hefjist í september 16. ágúst 2007 12:08
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti í gær að breyta skipulagi í sveitarfélaginu þannig að olíuhreinsistöð geti risið í landi Hvestu í Arnarfirði. Viðræður milli aðstandenda stöðvarinnar og landeigenda eru þó ekki hafnar en bæjarstjórinn í Vestuggð vonar að ef allt gangi að óskum verði hægt að hefja byggingu stöðvarinnar næsta vor. Bæjarstjórn Vesturbyggðar ákvað að breyta skipulaginu eftir að Íslenskur hátækniiðnaður, sem hefur áform um að reisa olíuhreinsunarstöðina, komst að samkomulagi við landeigendur í Hvestu í Arnardal að hefja undirbúning viðræðna um landakaup undir stöðina. Ólafur Egilsson, fyrrverandi sendiherra, sem er einn forsvarsmanna Íslensks hátækniiðnaðar, segir að hugmyndir séu uppi um stöð sem unnið geti átta milljónir tonna af jarðolíu á ári. Stöð af þeirri stærðargráðu þurfi um 130 hektara af landsvæði. Ólafur segir að landssvæði í Hvestu í Arnarfirði sé rúmt fyrir stöð af þeirri stærð. Í Hvestudal hefur verið reist virkjun, Hvestuvirkjun, og segir Ólafur að ekkert sé því til fyrirstöðu að hún starfi áfram. Aðspurður hvenær viðræður við landeigendur um kaup hefjist segir Ólafur að það verði áður en langt um líður. Nú standi yfir frumathuganir á náttúrufari og aðstæðum á svæðinu ásamt þeim samfélagslegu áhrifum sem svo stórt fyrirtæki hafi á Vestfjörðum. Þeirri athugun eigi að ljúka nú í september og viðræður um landakaup hefjist væntanlega í framhaldinu. Svæðið í Hvestudal er þó ekki eini staðurinn sem Fjórðungssamband Vestfirðinga skoðar því land Sanda í Dýrafirði er einnig til athugunar. Það er í eigu Ísafjarðarbæjar og þar á bæ hafa menn lýst yfir áhuga á olíuhreinsistöð. Ísfirðingar hafa hins vegar ekki tekið ákvörðun um að breyta aðalskipulagi líkt og Vesturbyggðarmenn. Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar, segir byggingu olíuhreinsistöðvar vera lífsspurssmál fyrir framtíð byggðar á svæðinu. Stöðin skapi 500 störf og þá skapist einnig mörg hundruð afleidd störf tengd stöðinni.. Ef af verður, segir Ragnar, ætti að vera hægt að vinna umhverfismat fyrir stöðina í vetur og þá gætu framkvæmdir í landi Hvestu hafist strax næsta vor.
Mest lesið Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Hitnar undir feldi Péturs Innlent Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Fleiri fréttir Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Sjá meira