Hæst launaði opinberi starfsmaðurinn 7. júní 2007 18:30
Mikil ásókn fjármálafyrirtækja í sérhæft starfsfólk þrýstir launum millistjórnenda Seðlabankans upp, sem aftur hækkar laun Seðlabankastjóranna upp fyrir laun forsætisráðherra og forseta Íslands. Formaður bankastjórnar Seðlabankans verður með rúmt þingfrarakaup umfram forsætisráðherra í laun um næstu áramót og þar með hæst launaði opinberi starfsmaðurinn. Útrás íslenskra fjármálafyrirtækja hefur leitt til mikillar eftirspurnar eftir sérhæfðu starfsfólki. Þannig eru þrír nýjir bankar komnir eða á leið á markaðinn, Icebank, Saga Capital og Askar Capital, sem eins og allir hinir bankarnir leita stöðugt að nýju starfsfólki. Þá er horft til Seðlabankans eins og annarra stofnana sem búa yfir hæfu starfsfólki. Formaður bankaráðs Seðlabankans rökstyður nýlega ákvörðun um hækkun launa bankastjóranna um 200 þúsund krónur á mánuði með þessum þrýstingi, en í svari við fyrirspurn fréttastofunnar segir Helgi S. Guðmundsson formaður ráðsins: Hörð samkeppni er um hæft starfsfólk á meðal fjármálastofnana sem kemur ekki á óvart eins hratt og umsvif íslenskra banka hafa vaxið. Afar mikilvægt er fyrir Seðlabankann að hafa jafnan í þjónustu sinni eins gott starfslið og völ er á og verður hann að taka mið af ríkjandi umhverfi til þess að svo geti verið. Þessar hækkanir eru engu að síður í litlu samræmi við þróunina á almennum launamarkaði. Í jánúar 2005 hækkuðu laun bankastjóranna um 15 prósent og um 5% í jánúar 2006 og 2007. Ákvörðunin nú felur í sér 100 þúsund króna hækkun strax og aðra slíka hækkun hinn fyrsta janúar næst komandi. Þá verða laun seðlabankastjóra eftirfarandi: Grunnlaun 1.409.535 og bankaráðsþóknun 110 þúsund, samtals 1.519.535 krónur. Davíð Oddsson seðlabankastjóri færri hærri laun sem formaður bankastjórnar. Hann er með sömu grunnlaun en fær 8 prósenta álag sem er 112.763 og tvöfalda bankaráðsþóknun sem er 220 þúsnd krónur. Að auki fá hann og hinir bankastjórarnir bíl til eigin afnota frá bankanum sem greiðir einnig símakostnað bankastjóranna. Til samanburðar er forseti Íslands með 1.726.000 krónur í mánaðarlaun, aðeins minna en formaður bankastjórnar, forsætisráðherra er öllu lægri með eina milljón og þrjátíu þúsund krónur. Aftur til samanburðar þá er þingfararkaup rúmar 517 þúsund krónur og því er formaður bankastjórnar Seðlabankans með ríflega þingfararkaup meira í laun á mánuði en forsætisráðherra. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar geta millistjórnendur á fjármálamarkaðnum verið með svipuð og jafnvel töluvert hærri laun en seðlabankastjórarnir og bankastjórar viðskiptabankanna eru með margföld þessi laun. Ragnar Arnalds var eini bankaráðsmaður Seðlabankans sem greiddi atkvæði gegn hækkun launa bankastjóranna. Hann segist skilja vanda Seðlabankans við að halda í starfsfólk, en það þýði ekki fyrir bankann að eltast við öfgana á almenna markaðnum og það geti haft skaðleg áhrif á launakerfi ríkisins í heild. Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins óttast ekki að þetta leiði til mikils launaskriðs á almennum markaði.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Erlent Fleiri fréttir Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Sjá meira