Vilja fara stystu leið 12. ágúst 2007 19:01
Stytting þjóðvegarins við Hornafjörð þolir enga bið segir forseti bæjarstjórnar Hornafjarðar. Hann segir bæjarstjórn einhuga í afstöðu sinni um málið enda ríkir almannahagsmunir í húfi. Landeigendur á Nesjum við Hornafjörð hafa kært úrskurð umhverfisráðherra frá í maí og vilja að aðrar leiðir verði farnar. Fyrirhuguð stytting þjóðvegarins hefur lengi verið á teikniborðinu. Vegagerðin lagði fram þrjár veglínur vegna framkvæmdanna og sem munu stytta veginn um 10 til 12 kílómetra eftir því hvaða leið er valin. Þær ná frá hringvegi vestan Hornafjarðarfljóta, yfir Hornafjarðarfljót og að hringvegi skammt austan Hafnarvegar sem liggur að Höfn í Hornafirði. Þessar leiðir voru allar sendar í umhverfismat. Bæjarstjórn Hornafjarðar fundaði vegna málsins í síðustu viku og komst að þeirri niðurstöðu að fara leið 3. Landeigendur á Nesjum við Hornafjörð eru ósáttir við að fleiri leiðir hafa ekki verið settar í umhverfismat en þessar þrjár og hafa kært úrskurð umhverfisráðherra. Þeir segja valkostina þrjá ótæka, leiðirnar fari yfir votlendi sem muni hafa í för með sér stórkostleg umhverfis- og náttúruspjöll á einstöku ósnortnu landi þeirra. Þá muni fyrirhugað vegstæði skerða eignarlönd, rýra möguleika á landnýtingu, valda spjöllum á ræktunarlöndum og spilla beitilöndum. Árni Rúnar Þorvaldsson, forseti bæjarstjórnar segist vonast til að kæra landeigendanna tefji ekki málið enda þoli lagning vegarins ekki bið, ríkir almannahagsmunir séu í húfi.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Fleiri fréttir Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Sjá meira