Bó berst fyrir bættu öryggi á netinu 23. janúar 2007 04:15 „
Nei, ég hef nú ekki lent í því að fólk hafi efast um hver ég væri en sumir hafa ekki alltaf kveikt á perunni," segir stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson en eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær leikur hann í auglýsingu fyrir Auðkennislykil sem á að tryggja öryggi bankaviðskipta á netinu. Í auglýsingunni er gert út á að þótt menn séu þekktir á þessari eyju skipti það litlu máli á netinu. „Mér finnst þetta gott málefni enda nota ég netið mikið sjálfur. Og það er aldrei nógu mikið gert til að tryggja öryggið þar," segir söngvarinn. Björgvin kvaðst vera afar sáttur við starfsfólkið frá Filmus og auglýsingastofunni Hvíta húsinu og sagði að tökuliðið hefði verið ákaflega fagmannlegt. Hann hrósaði Björgvin Franz Gíslasyni í hástert en leikarinn bregður sér í líki Bó í auglýsingunni. „Nafni minn er einhver besti skemmtikrafturinn sem við eigum um þessar mundir og ég var ákaflega ánægður þegar ég heyrði að hann hefði verið ráðinn til verksins," segir Björgvin. Sjálfur hefur stórsöngvarinn gert lítið af því að leika en hefur þó komið fram í kvikmyndum á borð við Djöflaeyjuna og kvikmyndinni Gullsandur. „Að leika hefur alltaf kitlað mig en ég hef ekki gert mikið af því að koma fram í auglýsingum," segir Björgvin, sem mundi þó eftir kaffiauglýsingu frá Ó. Johnson & Kaaber sem birtist fyrir allmörgum árum. Björgvin ruddi þar brautina fyrir íslenska poppara í auglýsingum en þeir eru ófáir tónlistarmennirnir sem hafa fetað í þau spor.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Fleiri fréttir Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Sjá meira