Starfshópur undirbýr hlutafélagavæðingu OR 6. september 2007 14:23 MYND/Róbert
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að mynda sérstakan starfshóp um hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur. Eins og kunnugt er samþykkti stjórn Orkuveitunnar á mánudag að beina því til eigenda, Reykjavíkurborgar, Borgarbyggðar og Akraneskaupstaðar, að breyta rekstrarfyrirkomulaginu í hlutafélagaform úr sameignarformi.Að sögn Björns Inga Hrafnssonar, formanns starfshópsins, tekur hann þegar til starfa. Hópurinn eigi að gera tillögu um hvernig best sé að haga undirbúningi að hlutafélagavæðingu. Í starfshópnum eiga sæti auk Björns Inga, borgarlögmaður, forstjóri Orkuveitunnar, fulltrúar Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar auk fulltrúa flokkanna í borgarstjórn. Björn Ingi vonast til þess að starfshópurinn ljúki störfum á tveimur til þremur vikum en segir að vandað verði til verka.Ólíklegt að kosið verði um hlutafélagavæðinguÁ fundi borgarráðs í morgun lagði Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri - grænna, það til að starfshópurinn undirbyggi íbúakosningu um breytinguna á rekstrarformi Orkuveitunnar. Þeirri tillögu var vísað til starfshópsins. Aðspurður sagði Björn Ingi að tillagan yrði tekin fyrir hjá starfhópnum en hann ætti síður von á að hún yrði að veruleika. Fyrirtæki í eigu borgarinnar hefðu áður verið hlutafélagavædd, til að mynda Félagsbústaðir í tíð R-listans, án þess að kosið hefði verið um það.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira