Vinna verður stöðvuð hjá Hunnebeck og GT verktökum Björn Gíslason skrifar 6. september 2007 10:28
Fulltrúar frá Vinnumálastofnun og lögreglu eru á leið að Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar til að stöðva vinnu hjá fyrirtækjunum Hunnebeck Polska og GT verktökum, sem eru undirverktakar Arnarfells við Hraunaveitu. Að sögn forstjóra Vinnumálastofnunar hefur verið brotalöm á skráningu starfsmanna fyrirtækjanna í þrjá mánuði.Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að vinna fyrirtækjanna sé stöðvuð vegna þess að gögn og upplýsingar um starfsmenn þeirra hafi ekki borist þrátt fyrir leiðbeiningar frá Vinnumálastofnun.Forsvarsmenn verkalýðsfélaga í landinu hafa farið fram á það starfsemi þeirra fyrirtækja sem ekki virða leikreglur vinnumarkaðarins verði stöðvuð en aðspurður segir Gissur að vinna sé ekki stöðvuð nú vegna þrýstings frá verkalýðsfélögum heldur sé þetta gert í samræmi við málsmeðferðarreglur Vinnumálastofnunar.Gissur segir að vinna muni liggja niðri þar til þær upplýsingar sem skorti liggi fyrir. „Ef og þegar fyrirtækin geta lagt fram gögn og sýnt fram á að allt sé með felldu fá þau að halda áfram starfsemi," segir Gissur.Allt að hundrað starfsmenn hjá fyrirtækjunumHann segir ekki á hreinu hversu margir starfsmenn séu hjá fyrirtækinu en að Vinnumálastofnun viti af að minnsta kosti 60 starfsmönnum. Grunur leiki á að þeir séu allt að hundrað.Spurður hvort til greina komi að sækja fyrirtækin til saka fyrir að skrá ekki og veita fullnægjandi upplýsingar um starfsmenn sína segir Gissur að það sé næsta viðfangsefni. Það hafi verið ólögmætt ástand varandi um nokkurt skeið eða um þrjá mánuði.Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni á Egilsstöðum að tveir lögreglumenn væru með fulltrúum Vinnueftirlitsins í för og myndu þeir stöðva vinnu.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Sjá meira