Allt símasamband í Bolungarvík rofið - grafalvarlegt mál segir bæjarstjóri 13. ágúst 2007 18:00 MYND/365
Bæjastjórinn í Bolungarvík gagnrýnir Símann harðlega fyrir að láta bæjaryfirvöld vita of seint af fyrirhuguðum viðgerðum á símstöðinni í Bolungarvík. Allt símasamband í Bolungarvík fellur niður milli klukkan tvö og fjögur í nótt vegna viðgerða þar á meðal samband við Neyðarlínuna. Bæjarstjórinn segir um grafalvarlegt mál að ræða. Í tilkynningu sem Grímur Atlason, bæjarstjóri Bolungarvíkur, sendi frá sér í dag eru verklagsreglur Símans í tengslum við fyrirhugaðar viðgerðir gagnrýndar harðlega. Þar kemur fram að bæjaryfirvöld hafi fyrst fengið tilkynningu um sambandsleysið um klukkan tvö í dag. Þá segir ennfremur í yfirlýsingunni að um grafalvarlegt mál sé að ræða þegar þúsund manna byggðarlag sé sambandslaust við umheiminn í tvær klukkustundir. Slíkt þurfi að undirbúa og kynna með öðrum hætti en gert hafi verið. Er ábyrgðin sögð vera Símans. Vegna vinnu við tenginar í símstöðinni í Bolungarvík verða símnotendur tengdir símstöðinni sambandslausir milli klukkan tvö og fjögur í nótt. Farsímasamband mun einnig rofna en NMT kerfið verða virkt. Komi upp neyðarástand er íbúum bent á að leita á lögreglustöðina en þar verður sérstök vakt í nótt. Linda Björg Waage, upplýsingafulltrúi Símans, sagði í samtali við Vísi að hefðbundnum verklagsreglum hafi verið fylgt í þessu máli. Stærri fyrirtæki og Neyðarlínan hafi verið látin vita fyrir helgi en aðrir með sólarhrings fyrirvara. „Þetta eru nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir og óhjákvæmilegt að rjúfa símasamband vegna þeirra. Hins vegar er um stutt rof að ræða og við teljum okkur vera búin að lágmarka óþægindin."
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira