Ríki og borg vinni einnig að því að bæta ástandið 13. ágúst 2007 12:11
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, hyggst boða fulltrúa Reykjavíkurborgar og skemmtistaða í miðborginni á sinn fund til þess að reyna að finna leiðir til þess að uppræta það sem hann kallar ómenningu sem þrífst í miðbænum um helgar. Veitingahúsaeigandi í miðbænum segist reiðubúinn til viðræðna en segir að endurskoða þurfi lög sem snúa að veitingarekstri í miðbænum. Stefán bendir á að hlutfall ofbeldisbrota í miðborginni, sem framin eru eftir miðnætti, hafi hækkað á síðustu árum og þá sé ásýnd miðborgarinnar og gesta hennar síðla nætur um helgar vægast sagt ömurleg. Meta þurfi reynsluna af löngum afgreiðslutíma skemmistaða í borginni og hugsanlega breyta honum og þá þurfi borgaryfirvöld að ákveða hvort beina eigi starfsemi dansstaða á önnur svæði í borginni. Stefán segir ýmislegt í burðarliðnum af hálfu til þess að bæta ástandið. Hugmyndir séu uppi um að auka sýnileika lögreglu enn frekar með svokallaðri færanlegri lögreglustöð og þá standi til að fjölga eftirlitsmyndavélum í borginni. Kallar Stefán eftir ábyrgð allra, ekki síst eigenda og rekenda skemmtistaða, sem verði að þrífa betur við staði sína og taka skýra afstöðu gegn fíkniefnum með því að tilkynna um alla slíka sölu og vísa slíkum sölumönnum á dyr. Með þetta að markmiði hefur Stefán að funda með bæði borgaryfirvöldum eigendum skemmtistaða til þess að bæta ástandið í miðbænum. Kormákur Geirharðsson er einn þeirra sem rekur öldurhús í miðbænum. Hann segist reiðubúinn að ræða ástandið í miðbænum við yfirvöld en bendir á að ábyrgðin á ástandinu hvíli ekki eingöngu á skemmtistöðunum. Borg og einnig ríki þurfi að koma að slíkum viðræðum og endurskoða þurfi lög og reglur sem snúa að veitingastarfsemi í miðbænum í heild. Veitingamenn reki starfsemi sem þeir reyni að lifa á með heiðarlegum hætti og ekki megi skella allri skuldinni á þá. Þá hafi veitingamenn opnað staði sína eins og almenningsklósett á Menningarnótt en hafi litlar þakkir fengið fyrir það. Þá bendir hann á að nýtt reykingabann yfirvalda hafi stuðlað að auknum sóðaskap á götum miðborgarinnar og hugsanlega þurfi að endurskoða það.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Fleiri fréttir Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Sjá meira