Hitti valdamesta Vítisengil Danmerkur Breki Logason skrifar 3. desember 2007 15:13 Margrét Helgadóttir bifhjólakona hitti valdamesta Vítisengil Danmerkur. „
Ég vissi nú ekki að hann væri nýsloppinn úr 16 ára fangelsi fyrir manndráp, en þetta virkaði sem fínn náungi," segir Margrét Helgadóttir bifhjólakona sem endaði í partýi með Jörn „Jönke" Nielsen þegar hann var hér á landi árið 1999. Margrét hefur ekkert hitt né heyrt af Jönke síðan hann var hér á landi og segist sjálf bara vera saklaus húsmóðir í Breiðholti. Hún er meðlimur í Sniglunum en þekkir nokkra Fáfnismenn mjög vel. „Á þessum tíma var nú ekki jafnmikil umræða um Hells Angels og er í dag," segir Margrét en Jönke er talinn einn valdamesti Vítisengill Danmerkur. Hann gekk í Vítisenglana árið 1980 og tók virkan þátt í stríði sem geisaði á milli Hells´Angels og Bullshitt mótorhljólaklíkunnar. Hann myrti síðan foringja klíkunnar sem kallaður var Makríllinn. Skaut hann 25 skotum úr vélbyssu og var í kjölfarið dæmdur í 16 ára fangelsi. Jönke var hinsvegar hér á landi árið 1999 og eyddi helgi með Margréti og félögum. Þetta sumar sótti Margrét um í lögreglunni. „Ég ætlaði að láta gamlan draum rætast." Það gekk þó ekki eftir og skrifaði Margrét á bloggsíðu sína að kannski gæti rassía sem lögreglan gerði í húsnæði Fáfnismanna haft þar áhrif. Þar gerði lögreglan upptækar myndir í eigu Fáfnismanna og á nokkrum þeirra var Margrét í fanginu á Jönke. „Nei þetta var nú meira skrifað í gríni, ég hugsa að þetta hafi ekki haft nein áhrif á umsókn mína í lögregluna," segir Margrét og hlær. Margrét setti barnaland.is á aðra hliðina eftir að hún bloggaði um þessi kynni sín af Vítisenglinum. „Ég vissi nú að ég fengi einhver viðbrögð en þetta var ótrúlegt. Einn morguninn fékk ég 700 heimsóknir og það var bara eins og hann væri maðurinn minn. Þetta var sjúklega fyndið," segir Margrét sem segist þó ekki hafa áhuga á Jönke sem mannsefni. „Hann er nú ekki beint mín týpa. Ég myndi frekar kjósa minna vesen og getað farið út í búð án þess að vera með lögregluna á hælunum." Margrét segist þekkja marga Fáfnismenn sem hafi verið góðir vinir hennar í yfir tíu ár. „Þeir eru margir mjög góðir vinir mínir þó ég sé ekkert alltaf sátt við allt sem þeir gera. En ég er fullorðin og verð að fá að velja mína vini." Henni finnst umræðan um Fáfni hafa gengið of langt upp á síðkastið. Ekki síst þegar lögreglan vaktaði partý í klúbbhúsi félagsins fyrir skömmu. „Það lá við að það væru þyrlur þarna á sveimi. Ég hringdi nú bara í félaga mína og sagði að ég kæmi kannski í næsta partý. Ekki vildi ég lenda í einhverri rassaskoðun," segir Margrét og hlær. Hún segist þó vel gera sér grein fyrir því að Hells´Angels menn séu engir kórdrengir. „Þeir fara ekkert í kirkju á sunnudögum og eru ekkert að hjálpa gömlum konum yfir götur. Hjólamenningin hér er lítil og við þekkjumst öll vel. Ég hef ekkert persónulega mikinn áhuga á fá þessa menn hingað til lands. En maður bannar ekki fullorðnum frekar en börnum að leika við hinn eða þennan."
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Grafinn í sand í sólarhring Lífið Fleiri fréttir Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Sjá meira