Skrautlegt líf Playboy-kanínu 10. febrúar 2007 12:30 Anna Nicole. Fjölmiðlar hafa löngum elt hana á röndum enda hefur líf hennar verið þyrnum stráð og meira en lítið skrautlegt.
Fyrrverandi Playboy-kanínan Anna Nicole Smith lést á fimmtudagskvöldið. Hún fannst látin á Seminole Hard Rock Casino sem staðsett er rétt fyrir utan Miami. Lífshlaup Önnu Nicole hefur verið í sviðsljósinu allt frá árinu 1993 þegar hún var valin leikfélagi ársins af karlatímaritinu Playboy. Ári síðar giftist hún olíukónginum Howard Marshall II en töluverður aldursmunur var á þeim skjötuhjúum, Marshall vantaði eitt ár í nírætt en Smith var nýbúin að fagna 27 ára afmæli sínu. Fyrirsætan var kosin leikfélagi ársins árið 1993 og giftist seinna auðkýfingnum Howard Marshall II. Fjölmiðlar eltu Önnu á röndum og sökuðu fyrirsætuna um að vera einungis á höttunum eftir fjármunum Marshalls. Þær sögur fengu síðan byr undir báða vængi þegar Marshall dó aðeins fjórtán mánuðum eftir brúðkaupið. Í ljós kom að hann hafði ánafnað Smith öllum sínum eigum og hófust í kjölfarið umfangsmikil réttarhöld sem sonur Marshall sótti. Niðurstaða í málinu fékkst ekki fyrr en í fyrra og úrskurðaði Hæstiréttur Bandaríkjanna að erfðaskrá Marshall skyldi standa og Smith væri réttmætur eigandi auðæfanna. Ofneysla lyfja. Starfsmenn dánardómstjóra bera lík Önnu Nicole út en krufning á enn eftir að fara fram. Líklegast er talið að ofneysla einhverra lyfja hafi komið við sögu. Anna fór um tíma huldu höfði en birtist öðru hvoru á síðum slúðurblaðanna og þá ekki síst vegna þeirra aukakílóa sem fyrirsætan hafði bætt á sig. Hún grenntist hins vegar með undraverðum hætti og skaust aftur fram í sviðsljósið þegar byrjað var að sýna raunveruleikaþætti um líf hennar árið 2002. Mál Önnu komst síðan aftur til kasta dómstóla þegar fyrrum unnusti hennar, Larry Birkhead, höfðaði mál á hendur henni og sagðist vera faðir stúlkubarnsins sem fyrirsætan hafði þá nýverið alið. Hún hélt því hins vegar statt og stöðugt fram að þetta væri ávöxtur ástar hennar og eiginmannsins, lögfræðingsins Howard Stern. Sonur Önnu, Daniel, lést skömmu eftir fæðingu systur sinnar og var það mikið áfall fyrir fyrirsætuna. Stóra áfallið reið síðan yfir skömmu eftir að dótturin leit dagsins ljós í fyrsta skipti en þá lést tvítugur sonur Önnu, Daniel, úr ofneyslu eiturlyfja. Fjölmiðlar komu fyrst af fjöllum því fáir vissu af tilveru drengsins. Fyrirsætan var hundelt og hún krafin svara, jafnvel sökuð um að hafa brugðist barninu sínu. Dauði Daniels fékk mikið á fyrirsætuna og voru margir bandarískir fjölmiðlar þeirrar skoðunar í gær að missirinn hefði hreinlega gengið af henni dauðri. Krufning á enn eftir að leiða í ljós dánarorsökina en samkvæmt móður Önnu Nicole er talið líklegast að einhvers konar ofneysla hafi orðið henni að aldurtila.
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira