Innlent

Lækningaminjasafn rís eftir tvö ár við Nesstofu

Til stendur að reisa nýja safnbyggingu fyrir Lækningaminjasafn Íslands á safnasvæðinu við Nesstofu samkvæmt samningi sem gerður hefur verið.

Saminginn undirrituðu bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi, menntamálaráðherra, fulltrúi Þjóðminjasafnsins og formenn Læknafélags Íslands og Læknafélags Reykjavíkur og kveður hann á um bæði byggingu og rekstur húsnæðis fyrir Lækningaminjasafn Íslands og aðra menningartengda starfsemi.

Samkvæmt tilkynningu frá Seltjarnarnesbæ ber bærinn ábyrgð á framkvæmdum við safnabygginguna en kostnaður við hana er áætlaður 345 milljónir króna. Samkvæmt samningnum mun Seltjarnarnes leggja til 110 milljónir króna auk lóðar undir safnið og Læknafélag Íslands leggur til 50 milljónir króna. Menntamálaráðuneytið greiðir 75 milljónir króna en að auki rennur söluandvirði fasteignarinnar Bygggarða 7 á Seltjarnarnesi i framkvæmdina. Bygggarðar 7 voru keyptir fyrir erfðafé Jóns Steffensen, prófessors emeritus, sem arfleiddi Læknafélag Íslands að tilteknum eignum og fjármunum í erfðaskrá sinni. Þá mun Seltjarnarnesbær reka og stjórna Lækningaminjasafninu þegar starfsemin hefst í níu húsnæði.

Byggingin verður 1300 fermetrar að stærð og verður reist samkvæmt teikningum Yrkis arkitekta ehf. en þær hlutu fyrstu verðlaun í opinni hönnunarsamkeppni sem fram fór árið 1997. Samkvæmt samningnum er gert ráð fyrir að safnið verði risið og fullfrágengið haustið 2009 en það verður staðsett í nágrenni við Nesstofu og starfrækt í tengslum við hana.

Safnið mun starfa sem stofnun á vegum bæjarfélagsins og verður það miðstöð safnastarfsemi á sviði lækna- og heilbrigðisvísinda auk þess að bera ábyrgð á söfnun, varðveislu, rannsóknum og miðlun á þeim munum og minjum sem snerta sögu lækninga á Íslandi. Byggingin mun að auki nýtast undir aðra menningartengda starfssemi Seltjarnarnesbæjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×