Innlent

Táragasi beitt í Reykjanesbæ

Rétt fyrir kl. 05:00 í morgun brutust út hópslagsmál á Tjarnargötu í Reykjanesbæ. Lögreglumenn fóru á staðinn sökum óspekta og lentu þar í átökum við fjölda fólks.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var veist að lögreglumönnum með spörkum og höggum.

Lögreglumenn beittu táragasi með það að markmiði að leysa upp slagsmálin. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu slasaðist enginn alvarlega í átökunum en nokkrir aðilar leituðu sér læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vegna minniháttar áverka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×