Bæjarstjóri býður fram sáttahönd 10. ágúst 2007 12:45
Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segist hafa ákveðið að takmarka aðgang ungmenna á aldrinum 18-23 ára að tjaldstæðum bæjarins um verslunarmannahelgina af illri nauðsyn. Hún hvetur til sátta í málinu og aðstandandi undirskriftasöfnunar gegn meirihluta bæjarstjórnar segist reiðubúinn að ræða við bæjarstjóra. Eins og fram hefur komið í fréttum hafa staðið deilur um þá ákvörðun bæjaryfirvalda á Akureyri að meina ungmennum á aldrinum 18-23 ára að tjalda á tjaldstæðum bæjarins um verslunarmannahelgina. Í yfirlýsingu sem Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri hefur sent frá sér segir hún að þetta hafi því miður verið eina færa leiðin til þess að koma böndum á það ástand sem ríkt hafi í bænum um verslunarmannahelgina undanfarin ár. Sigrún segir enn fremur að mun fleiri þættir en aldurstakmark á tjaldsvæðum hafi dregið úr aðsókn að hátíðinni Einni með öllu í ár, þar á meðal veðrið sem hafi verið verst á Norðurlandi þessa helgi. Hvetur Sigrún bæjarbúa til að slíðra sverin og nota næsta árið til að ákveða hvernig standa beri að fjölskyldumhátíðum í bænum til framtíðar. Birgir Torfason, veitingamaður á Akureyri og einn af aðstandendum Einnar með öllu, hefur undanfarna daga staðið fyrir undirskriftasöfnun þar sem skorað er á meirihluta bæjarstjórnar að segja af sér. Hann sagði í samtali við fréttastofu í morgun að safnast hefðu á bilinu 500-600 undirskriftir í bænum og á Netinu á síðunni akureyri.blog.is. Hann reiknaði með að safna undirskriftum áfram í dag og afhenda þær líklega eftir helgi. Hann sagði að bæjaryfirvöld hefðu staðið illa að málinu og að hátíðin hefði ekki verið haldin ef bæjaryfirvöld hefðu tilkynnt fyrr í sumar að til stæði að takmarka aðgang ungmenna að tjaldstæðunum. Aðspurður um sáttaboð Sigrúnar sagði Birgir að hann væri reiðubúinn að setjast niður og ræða framtíðina við hana ef hún léti í sér heyra.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira