Fengu ekki að leggja fram bókanir í bæjarstjórn 30. júlí 2007 15:04 MYND/ÓTT
Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar eru ósáttir við vinnubrögð meirihlutans varðandi samkomulag sem gert hefur verið við Kalmansvík ehf. um heimild til að útfæra allt að sjö hektara land við Kalmansvík þar sem fyrirhugað er að reisa allt að 450 íbúðir fyrir 50 ára og eldri. Á aukafundi í bæjarstjórn sem haldinn var á laugardaginn var fulltrúum minnihlutans meinað að leggja fram bókanir vegna málsins.Hrönn Ríkharðsdóttir fulltrúi Samfylkingarinnar í bæjarstjórn segir að þegar forseti bæjarstjórnar hafi ákveðið að slíta fundi án þess að hægt væri að leggja bókanirnar fram hafi minnihlutinn gert athugasemd við fundarsköp. Forsetinn, Gunnar Sigurðsson, hafi hins vegar staðið við þá ákvörðun að slíta fundi og við það sat. „Við höfum tekið þá ákvörðun að birta bókanirnar þrátt fyrir þetta," segir Hrönn. Hún segir að Gunnar hafi neitað sér um orðið á fundinum og að það sé í skoðun út frá stjórnsýslulögum hvort farið hafi verið eftir settum reglum.Hrönn segir minnihlutann vera á þeirri skoðun að ekki sé tímabært að gera þennan samning við Kalmansvík strax. Hún segir mun eðlilegra að bærinn fari sjálfur í það verk að útfæra skipulagið á svæðinu án aðkomu fyrirtækisins. „Við lítum á það þannig að ef bærinn vinnur að skipulagi með fyrirtækinu þá séu ekki líkur á því að því verði hafnað seinna í ferlinu," segir Hrönn og bætir því við að eðlilegra hefði verið að bærinn sæi alfarið um útfærslu skipulagsins þannig að öðrum áhugasömum aðilum væri gert kleift að koma að málinu á seinni stigum.Hrönn segir einnig undarlegt að samkomulag bæjarstjórnarinnar við Kalmansvík skuli hafa verið undirritað þann 12. júní síðastliðinn. Þann sama dag var haldinn fundur í bæjarstjórninni án þess að samkomulagsins hafi verið getið. „Síðan heldur Kalmansvík kynningarfund um málið fyrir fulltrúa meirihlutans en ekki fyrir okkur í minnihlutanum, það var ekki gert fyrr en seinna," segir Hrönn Ríkharðsdóttir.Bókanir minnihlutans sem ekki var hægt að leggja fram má sjá hér í viðhengi.
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Innlent Þurfi að sannfæra flokkinn Innlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Fleiri fréttir Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Sjá meira