Innlent

Áhættumat verði kannað

Samráðsnefnd landssambanda innan ASÍ hefur óskað eftir því við Vinnueftirlitið að það kanni hvort áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnusvæði Kárahnjúkavirkjunar hafi að geyma forvarnir og áhættumat vegna kynferðislegrar áreitni.

Óskað er eftir því að kannað verði hvaða þjónusta þolendum kynferðislegrar áreitni standi til boða af hálfu fyrirtækisins og hvernig tekið sé á málum. Einnig er óskað eftir því að kannað verði hvernig staðið sé að kynningum á ofannefndum reglum meðal starfsmanna og yfirmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×