Sár og svekktur ef satt reynist 10. janúar 2007 14:30 Sigurður Þ. Ragnarsson ætlar að leggja málið fyrir dómefndina og yfirgrafíkerinn. „
Það hringdi í mig maður skömmu eftir að keppninni lauk og sagði að verðlaunamyndin væri fölsuð. Ég var með atvinnuljósmyndara í dómnefndinni sem gerði engar athugasemdir við hana,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfréttamaður á Stöð 2, en að undanförnu hefur tölvupóstur gengið manna á milli þar sem því er haldið fram að sigurmynd veðurljósmyndakeppni Stöðvar 2 sé óekta. „Ég stend alveg berskjaldaður gagnvart þessu og mér þykir þetta mjög sárt ef satt reynist,“ bætir Sigurður við. Falsað eða ekki falsað? Greinilegt er að sá sem heldur þessu fram hefur lagt mikið á sig við að sanna sitt mál. Í tölvupóstinum er því haldið fram að fjall sem sjáist á myndinni sé alls ekki við Jökuls-árlón og að speglunin í vatninu í forgrunni gangi ekki upp. Það styðji þá hugmynd að ljósmyndin sé tekin í dagsbirtu en ekki að kvöldi. Sigurður útskýrir að ekki hafi verið neitt sem hafi bannað notkun á photoshop-ljósmyndaforritinu. „Ég ætla að ráðfæra mig við dómnefndina og yfirgrafíkerinn vegna þessa,“ sagði Sigurður. Fréttablaðið hafði samband við Þorstein Ásgeirsson, ljósmyndarann sem tók sigurmyndina, og hann vísaði þessum fullyrðingum algjörlega á bug. „Einhverjir hafa verið að bera út gróusögur um að myndirnar í efstu sætunum séu falsaðar en mín er það ekki,“ lýsir Þorsteinn yfir. Hann segir myndina vera fjögurra ára gamla og að hún sé tekin í átt að brúnni. „Hið meinta fjall er sennilega einhver hluti af Öræfajökli,“ útskýrir Þorsteinn sem jafnframt segist varla kunna á photoshop-forritið. „Þetta er bara eitthvert rugl og sennilega bara sama gamla sagan, öfund,“ bætir hann við.
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira