Aðild að ESB besta kjarabótin 26. júlí 2007 11:43
Viðskiptaráðherra segir að stærsta skrefið sem hægt væri að stíga til lækkunar matvælaverðs á Íslandi, væri að Ísland gengi í Evrópusambandið. Þá segir hann að krónan muni ekki gagnast sem gjaldmiðill til langframa, þegar myntkerfum í heiminum fækki, sem einnig mæli með Evrópusambandsaðild Íslendinga. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sat fyrir svörum í Íslandi í dag í gærkvöldi. Þar var hann meðal annars spurður um stöðu krónunnar í ljósi mikilla viðskipta sem urðu í gær þegar Novator greiddi út tæpa tvö hundruð milljarða fyrir hlutabréf í Actavis. Krónan hefur um langt skeið verið sterk gagnvart helstu gjaldmiðlum, sem útflutningsfyrirtækin kvarta undan, enda er endurgjald þeirra í erlendri mynt minna fyrir vikið. Viðskiptaráðherra segir krónuna ekki ganga upp sem gjaldmiðil til lengdar. Viðskiptaráðherra segir það sína skoðun að það endi með því að Íslendingar taki upp evruna. Það sé hins vegar ekki á dagskrá núverandi ríkisstjórnar. Björgvin telur útilokað að evran verði tekin upp án aðildar að Evrópusambandinu. En þótt það sé ekki á dagskrá núverandi ríkisstjórnar að sækja um aðild að Evrópusambandinu, telur viðskiptaráðherra að hún muni hagnast Íslendingum. "Stærsta skrefið til að lækka matvælaverð er að sækja um aðild að Evrópusambandinu og ganga síðan í það," segir Björgvin. Þangað til sé hægt að gera ýmislegt annað. Viðskiptaráðherra nefnir að virðisaukaskattur á matvæli hafi verið lækkaður í marsmánuði, en til viðbótar megi lækka tolla á innflutt matvæli, ásamt því að standa vörð um raunverulega samkeppni á smásölumarkaði.
Mest lesið Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Innlent Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Innlent Metfjöldi á biðlista og mögulega þarf að vísa frá Innlent Nítján ára ferðamaður fannst látinn Erlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Erlent Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Bíll í ljósum logum á Skaganum Innlent Fleiri fréttir Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Metfjöldi á biðlista og mögulega þarf að vísa frá Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Bíll í ljósum logum á Skaganum Vatnslögn í sundur í Smáralind Aldrei fleiri börn á biðlista og útrás í Kína Á hundrað og þrjátíu á sextíu götu Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Leggja til 80 milljónum árlega í nýja líkbrennslu Hinn stungni á batavegi en stungumennirnir ófundnir Mikill áhugi á ræktun rabarbara með tilkomu Rabarbarafélags Íslands Málþófið endurspegli ráðaleysi minnihlutans gagnvart samstíga stjórn Vill meira frá ríkinu, annars gætu nemar þurft að borga meira Stutt í land í þinginu og spenna fyrir landsleik Yfirgangur hins opinbera, þrátefli á þinginu og fráleit þjóðaratkvæðagreiðsla Ætla að knýja Flatey með sólarorku Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Sjá meira