Segir virkjanir borga sig upp á 15-16 árum 9. júní 2007 14:45
Orkuveita Reykjavíkur segir að virkjanir hennar borgi sig upp á 15 til 16 árum og mótmælir þannig þeirri frétt Fréttablaðsins í dag að virkjanirnar borgi sig ekki upp á 25 árum með raforkusölu til álversins í Helguvík miðað við tíu prósenta arðsemiskröfu borgarinnar. Í tilkynningu frá Orkuveitinunni kemur fram að virkjanir fyrirtækisins séu fjármagnaðar að fullu með lánsfé og bent er á að arðsemiskrafan vegna samningsins við Norðurál sé um 13 prósent. Útreikningar á arðsemi samninga séu enn fremur flóknir. Þá bendir Orkuveitan enn fremur á að lágmarkslíftími jarðgufuvirkjana sé 50 til 60 ár en ekki sé ólíklegt að virkjanirnar muni endast í yfir 100 ár með hliðsjón af því viðhaldi sem þær fá. Enn fremur tekur Orkuveitan fram að fyrirtækið sé með lánshæfismat og fjármagni framkvæmdir hjá stórum alþjóðlegum fjárfestingasjóðum sem allir leggi mat á aðferðafræði OR við arðsemi virkjana. Þá hafi Eftirlitsstofnun EES einnig lagt mat á aðferðafræði OR á útreikningi á arðsemi virkjana og hvort í orkuverðinu felist niðurgreiðsla á álvinnslu. Að lokum er bent á í tilkynningu Orkuveitunnar að rafmagnsframleiðsla í jarðvarmavirkjunum hennar greiði í raun niður heitavatnsframleiðslu fyrir borgarbúa. Ef ekki væri fyrir rafmagnsframleiðslu í virkjununum þyrfti heitavatnsreikningur borgarbúa því að vera 16 prósentum hærri. Þá hafi eigin framleiðsla OR einnig gert kleift að lækka rafmagnsverð um fjórðung miðað við vísitölu síðan rafmagnsframleiðsla fyrirtækisins í jarðvarmavirkjunum hófst.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Sjá meira