Vilja aflétta trúnaði af raforkuverði 9. júní 2007 12:19
Meirihluti stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur vill gjarnan aflétta trúnaði af raforkuverði til að koma í veg fyrir ranghugmyndir en fullyrðir að orkusölusamningar vegna Helguvíkurálvers séu þeir hagstæðustu sem fyrirtækið hafi gert. Meirihluti stjórnar Orkuveitunnar sendi frá sér yfirlýsingu um þetta efni, væntanlega vegna umræðu um að orkuverðið sé 2,1 króna á kílóvattsstund - sem staðfest hefur verið af forstjóra fyrirtækisins. Hafa verður þó í huga að orkuverð er tengt álverði og dollaragengi og tekur því breytingum. Trúnaður um orkuverðið er að frumkvæði kaupandans segja stjórnarmennirnir en sjálfir telja þeir æskilegast að það sé heppilegra til framtíðar litið að aflétta leynd af orkusölusamningum til stóriðju. Það komi í veg fyrir ranghugmyndir og misskilning sem mjög hafi borið á í umræðunni eins og segir í yfirlýhsingunni. Stjórnarmenn gera að umræðu þann gjörning fulltrúa Vinstri grænna að víkja af stjórnarfundi vegna þess að því var hafnað að aflétta leynd af orkusölusamningnum. Fullyrða þeir samt að allir stjórnarmenn hafi verið upplýstir um efnisatriði samningsins vegna Helguvíkurálvers, þar á meðal upplýsingar um orkuverð. Í Fréttablaðinu í dag er fullyrt að tap verði á orkusölunni til Helguvíkurálversins á samnignstímanum sem er 25 ár. Tapið nemi 840 milljónum króna. Blaðið segist byggja þessa útreikninga á forsendum sem Orkuveitan hafi upplýst um. Í þessu dæmi er reiknað með kröfu um arðsemi uppá 10 prósent. Tilkostnaður Orkuveitunnar vegna þessa samnings mun borga sig upp á 30 árum miðað við þær forsendur sem Fréttablaðið gefur sér.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Sjá meira