Laun seðlabankastjóra hafa hækkað um 25 prósent síðan 2005 6. júní 2007 20:15 MYND/GVA
Hörð samkeppni um hæft starfsfólk á meðal fjármálastofnana réð því að bankaráð Seðlabankans ákvað að hækka laun bankastjóra. Þetta kemur fram í skriflegu svari Helga S. Guðmundssonar, formanns bankaráðs Seðlabankans, við fyrirspurn fréttastofu Stöðvar 2. Frá ársbyrjun 2005 hafa laun bankastjóra Seðlabankans hækkað um 25 prósent. Í fyrirspurn fréttastofu Stöðvar 2 var óskað eftir upplýsingum um launahækkanir seðlabankastjóra undanfarin þrjú ár og afhverju ákveðið var að hækka launin nú. Þá var ennfremur óskað eftir upplýsingum um önnur fríðindi bankastjóra. Í svari sínu vísar Helgi S. Guðmundsson, formaður bankaráðs Seðlabankans, í ræðu sem hann hélt á ársfundi bankans 30. mars síðastliðinn. Þar sagði hann að hörð samkeppni ríkti á milli fjármálastofnana um hæft starfsfólk. Afar mikilvægt værir fyrir Seðlabankann að hafa jafnan í þjónustu sinni eins gott starfslið og völ er á og því verði hann að taka mið að ríkjandi umhverfi til þess að svo verði. Frá árinu 2005 hafa laun bankastjóra hækkað um 25 prósent. Í ársbyrjun 2005 hækkuðu launin um 15 prósent, 5 prósent í ársbyrjun 2006 og aftur um 5 prósent í ársbyrjun 2007. Frá 1. janúar á næsta ári munu laun bankastjóra nema alls 1.409.535 krónum. Ennfremur segir í svari Helga að bankastjórar hafi til umráða bifreið sem bankinn leggi þeim til og greiðir kostnað af. Þá greiðir bankinn einnig símakostnað bankastjóranna. Þá kemur fram í svari Helga að formaður bankastjórnar fær 8 prósent álag á laun bankastjóra. Þá fá bankastjórar einnig greidda bankaráðsþóknun eins og hún er ákveðin hverju sinni af forsætisráðherra. Nú nemur hún 110 þúsund krónu og fær formaður bankastjórnar tvöfalda þóknun.
Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Fleiri fréttir Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Sjá meira