Hvað eru Íslendingar að gera í Danmörku? Gunnar Valþórsson skrifar 6. júní 2007 10:34 MYND/Teamevent
Flestir þeirra Íslendinga sem búsettir eru í Danmörku og stunda vinnu á annað borð starfa við að veita ýmiskonar þjónustu við atvinnurekstur. Í þessum geira starfa 530 Íslendingar en í tölum dönsku hagstofunnar vekur það athygli að aðeins 19 Íslendingar stunda sjóinn í Danmörku. Fjármálaráðuneytið hefur tekið saman við hvað þeir 7.800 Íslendingar sem búsettir eru í Danmörku eru að starfa við. Samkvæmt tölum dönsku hagstofunnar töldust aðeins 3.200 þeirra hafa verið starfandi um síðustu áramót. Á starfsaldri, 16 - 74 ára, voru 5.900 og því er hlutfall þeirra sem stunda vinnu og eru á starfsaldri aðeins 54 prósent. Í tölum hagstofunnar dönsku kemur þó ekki fram hve stór hluti þessara Íslendinga er á atvinnuleysisskrá og segir ráðuneytið að gera verði ráð fyrir því að töluverður fjöldi þessa fólks sé í námi. Lánþegar Lánasjóðs íslenskra námsmanna í Danmörku hafa verið um það bil 1.000 undanfarin ár að því er kemur fram í frétt ráðuneytisins. „Sumir þeirra fara til starfa eftir það á þeim vettvangi sem þeir hafa menntað sig til en aðrir við það sem þeir störfuðu við hérlendis." Enn aðrir fara svo utan til að freista gæfunnar, reyna eitthvað nýtt. Ráðuneytið bendir á að íslenskum starfsmönnum útrásarfyrirtækjanna í Danmörku fari fjölgandi. Flestir vinnandi Íslendinga í Danmörku afla sér lífsviðurværis í þjónustu við atvinnurekstur. Þar eru um að ræða fyrirtæki eins og bókhalds- og auglýsingastofur, arkitekta- og verkfræðistofur. Í þessum geira störfuðu 530 Íslendingar um síðustu áramót, eða 18 prósent af vinnandi Íslendingum í Danmörku. Starfsmenn í félagsþjónustu eru næstfjölmennastir og þar á eftir koma starfsmenn í byggingastarfssemi, menntastofnunum, heilbrigðisstofnunum og á hótelum og veitingastöðum. Það vekur kannski mesta athygli að einungis 19 Íslendingar stunda sjóinn í Danmörku.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira