Innlent

Eldur í bíl á Hverfisgötu

Eldur kom upp í bíl á Hverfisgötu um klukkan hálf sex í kvöld. Að sögn lögreglunnar var bíllinn á ferð þegar skyndilega byrjar að rjúka upp úr vélarhlífinni.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var um að ræða bíl af gerðinni BMW. Ökumaður var einn í bíllnum en hann sakaði ekki. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en bíllinn er nokkuð skemmdur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×