Samgönguráðherra telur óeðlilegt að lágflug verði heimilað Sighvatur Jónsson skrifar 29. júlí 2007 19:16
Samgönguráðherra telur óeðlilegt að veitt sé leyfi fyrir lágflugi orrustuþotna í tengslum við heræfinguna Norður-víkingur, hér á landi um miðjan ágúst. Stjórnandi æfinganna hefur staðfest að búið sé að senda inn beiðni um slíkt. Formaður Vinstri grænna telur æfingarnar sýndarmennsku og utanríkisráðherra er ókunnugt um málið. Lágflug er jafnan hluti slíkra heræfinga, en samkvæmt íslenskum lögum er það ekki leyfilegt yfir sumartímann. Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi kom fram að búið væri að senda inn beiðni til Samgönguráðuneytisins og Flugmálastjórnar um frávik frá reglum um lágflug, í tengslum við heræfinguna Norður-víkingur hér á landi um miðjan ágúst. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, umhverfisráðherra, vildi ekki veita viðtal vegna málsins í dag, en sagði að sér væri ókunnugt um að óskað hafi verið heimildar til lágflugs í tengslum við æfinguna. Formaður vinstri grænna er ósáttur við að fjármunum sé varið í heræfingar hér á landi, og vill frekar efla uppbyggingu almannavarna, björgunarmála og löggæslu, svo eitthvað sé nefnt. Samgönguráðherra sagði í hádegisviðtalinu á Stöð 2 að eðlilegt ferli umsóknar um lágflug væri það að Flugmálastjórn afgreiddi hana. Endanlegt ákvörðunarvald er hins vegar hjá ráðuneytinu, en á ráðherra er að heyra að ólíklegt sé að umsókn um lágflug á sumartíma yrði samþykkt. Kristján vonar að einhvers misskilnings gæti hjá umsækjendum, og vonar að flogið verði í leyfilegri hæð svo æfingaflugið trufli ekki ferðamenn á viðkomandi svæðum.
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Innlent Þurfi að sannfæra flokkinn Innlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Fleiri fréttir Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Sjá meira