Heiðmerkurkæru NÍ vísað frá 23. mars 2007 13:45 MYND/Daníel
Úrskurðarnefnd um skipulags- og byggingarmál hefur vísað frá kæru Náttúruverndarsamtaka Íslands vegna þeirra ákvörðunar skipulagsráðs Reykjavíkur að veita framkvæmdaleyfi til lagningar vatnsveitu frá Vatnsendakrikum um Heiðmörk innan lögsögu Reykjavíkurborgar. Náttúruverndarsamtökin kröfðust þess að ákvörðunin yrði felld úr gildi og jafnframt að framkvæmdir samkvæmt leyfinu yrðu stöðvaðar þar til úrskurðarnefndin hefði kveðið upp úrskurð sinn í málinu. Var til þess vísað af hálfu samtakanna að fram hefði komið að framkvæmdin væri háð breytingu á aðalskipulagi sem ekki hefði enn verið gerð. Úrskurðarnefndin vísaði kærunni hins vegar frá á þeim grundvelli að samtökin hefðu ekki sýnt fram á að þau ættu neinna hagsmuna að gæta sem verið gætu grundvöllur aðildar að málinu. Enn fremur er bent á í úrskurði nefndarinnar að undantekning sé gerð frá þeirri meginreglu 8. greinar skipulags- og byggingarlaga að þeir einir geti skotið máli til úrskurðarnefndarinnar sem eigi lögvarða hagsmuni tengda hinni kærðu ákvörðun. Sú undantekning eigi bara við um framkvæmdir sem falli undir lög um mat á umhverfisáhrifum. Þessi undantekningarregla eigi hins vegar ekki við í þessu máli enda liggi fyrir niðurstaða Skipulagsstofnunar um að framkvæmdirnar í Heiðmörk skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum. Þá fellst úrskurðarnefndin ekki á að aðild Náttúruverndarsamtakanna að málinu geti átt sér stoð í Árósasamningnum. Sá samningur hefði ekki hlotið fullgildingu hér á landi og ekki hefðu verið gerðar neinar þær breytingar á íslenskum lögum sem miðuðu að því að innleiða ákvæði hans að því leyti sem skiptir máli í þessu samhengi.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Vann 131 milljón króna á kjördegi Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Innlent Fleiri fréttir Fengu boð í grillveislu en ekki að kjósa Lokatölur úr Skaftárhreppi: Meirihlutinn kolfallinn Aðalsteinn verður áfram sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhreppur fyrstur til að birta lokatölur Vann 131 milljón króna á kjördegi Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Sjá meira