Lífið

Umhyggjusöm eiginkona

Eiginkona bandarísks lögreglumanns hefur viðurkennt að hafa blandað hassi út í kjötbollur sem hún gaf honum að borða, í þeirri von að hann félli á lyfjaprófi, og yrði rekinn úr starfi.

Anthony Chiofalo átti að baki 22 ára glæstan feril í lögreglunni og tilheyrði úrvalssveit lögreglunnar í New York, sem berst gegn hryðjuverkum. Það var þó ekki af illkvittni sem Cathy, eiginkona hans, setti hass úr í kjötbollurnar, heldur vegna þess að hún óttaðist um öryggi hans.

Bróðir Chiofalos var slökkviliðsmaður sem lét lífið í árásunum á tvíburaturnana, sem hafði mikil áhrif á fjölskylduna. Sérstaklega tók Cathy það nærri sér og hafði síðan óttast svo mjög að missa eiginmanninn að hún greip til þessa óyndisúrræðis. Dómari hefur úrskurðað að Chiofalo skuli fá starf sitt aftur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.