Pantaði fjölda flugferða á stolin kortanúmer 18. ágúst 2007 02:30
Breskur karlmaður, sem fæddur er í Eistlandi, var í gær dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að stela kortanúmerum og bóka flugferðir á þeim. Maðurinn, sem er 26 ára gamall, játaði brot sín við yfirheyrslu. Hann stal kortanúmerunum á bar þar sem hann starfaði sem þjónn og nýtti sér þau til þess að kaupa ýmsa þjónustu, þar á meðal flugferðir, einkum frá London til Íslands og þaðan áfram til borga á Norðurlöndum, meðal annars Stokkhólms. Hann bókaði alls níu flug hingað til lands frá því í apríl á þessu ári með því að nota stolin kortanúmer. Upp komst um manninn þegar fólk, sem hafði greitt með korti á barnum í London, tók eftir því að flugför hefðu verið bókuð með þeirra kortanúmeri sem þau könnuðust ekki við. Upphæð þeirra brota sem snúa að ólöglegu athæfi mannsins hér á landi nemur um 800 þúsund krónum en heildarumfang brota mannsins er þó nokkuð meira. Að sögn Eyjólfs Kristjánssonar, hjá lögreglunni á Suðurnesjum, eru brot af þessu tagi litin alvarlegum augum og rannsóknir á þeim oft tímafrekar. Lögreglan á Suðurnesjum hefur varist frétta af málinu, vegna rannsóknarhagsmuna, frá því maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir um viku. Ákæra yfir manninum var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær og var hann dæmdur strax í kjölfarið, þar sem málið var að fullu upplýst. Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra vann að rannsókn málsins ásamt lögreglunni á Suðurnesjum. Upplýsinga var aflað í samvinnu við lögreglu á Englandi en maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu þar í landi fyrir fjármálamisferli. Maðurinn var dæmdur til þess að greiða rúmlega 1,3 milljónir króna í skaðabætur og 500 þúsund í kostnað vegna fjársvikanna.
Mest lesið Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Gestum komið fyrir á öðru hóteli Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira