Telja að mastur auki líkur á krabbameini 18. ágúst 2007 06:45 Mynd úr grenndarkynningu skipulags- og byggingasviðs. Mastrið tölvuteiknað inn á myndina. „
Samkvæmt erlendum rannsóknum hefur komið í ljós að umtalsverð aukning er á nýgengi krabbameins hjá íbúum sem búa í nálægð við farsímamöstur,“ segir í athugasemd íbúasamtaka þriðja hverfis, Hlíðar, Holta og Norðurmýri, við fyrirhugað fjarskiptamastur á lóð Kennaraháskóla Íslands og Fjöltækniskólans að Háteigsvegi 43 í Reykjavík. Samtökin benda á að fyrirhuguð staðsetning þessa átján metra háa masturs sé í um 130 metra fjarlægð frá leikskólanum Klömbrum og í um 180 metra fjarlægð frá Háteigsskóla. Til viðbótar eru Fjöltækniskólinn og Kennaraháskólinn skammt frá. „Ég er sammála samtökunum í þessu máli. Maður vill ekki vera á móti tækninni sem slíkri en á meðan það eru ekki til rannsóknir sem sýna að þetta sé meinlaust þá finnst mér að börnin eigi að njóta vafans,“ segir Ásgeir Beinteinsson, skólastjóri í Háteigsskóla. „Börnin eru í skólanum frá hálf níu á morgnana til þrjú á daginn og þá allan tímann undir áhrifum þessa masturs séu þau til staðar,“ segir hann. Í athugasemdinni, sem íbúasamtökin sendu skipulags- og byggingasviði, er vísað til tveggja rannsókna, frá Ísrael og Þýskalandi, þar sem niðurstöðurnar voru að fólk sem byggi í innan við 400 metra fjarlægð frá farsímamöstrum væri þrisvar til fjórum sinnum líklegra til að fá krabbamein en það sem býr lengra frá möstrunum. „Börn í hverfinu og borginni allri eiga ekki að vera tilraunadýr og ekki er hægt að leyfa sér að taka áhættu þegar kemur að þeirra heilbrigði,“ segir í erindi íbúasamtakanna. „Ég veit ekki um neinar nýlegar kannanir sem hafa verið að vekja ugg,“ segir Þorgeir Sigurðsson, rafmagnsverkfræðingur hjá Geislavörnum ríkisins sem hafa eftirlitshlutverk með farsímageislun á almenning. „Við förum eftir alþjóðlegum viðmiðunarmörkum um rafsegulsvið. Nokkrum metrum frá sendi mælist segulsviðið venjulega innan viðmiðunarmarka. Segulsvið frá GSM-síma sem menn eru með við eyrað er margfalt sterkara en frá sendunum, en þó innan viðmiðunarmarka,“ segir hann. Frestur til athugasemda rann út í gær. Samkvæmt upplýsingum hjá skipulags- og byggingasviði verða athugasemdir við deiliskipulagið teknar til athugunar á næstu dögum.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira