Innlent

Vill ekki að eitrað verði fyrir sílamáfi

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar

Íbúi við Leirvogshólma í Staðarhverfi gagnrýnir að fuglafræðingum verði í júní leyft að eitra fyrir sílamáfi á leiksvæði barna og unglinga. Náttúrufræðistofnun Íslands gerði alvarlegar athugasemdir við svæðavalið og lagðist gegn leyfinu.

Það er pólitísk stefna í Reykjavík að fækka mávi og minnka ágang hans í borgarlandinu. Það var enginn skortur á þeim á tjörninni síðdegis í gær þegar útsendarar fréttastofu áttu þar leið hjá - þar var sannkallað mávager. Skýrt er í lögum að bannað er að nota eitur eða svefnlyf til að drepa fugla nema þá í vísindaskyni eða ef villt dýr valda umtalsverðu tjóni eða umtalsverðum ama og aðrar aðferðir eru ekki taldar henta. En núna í júní hefur undanþága verið veitt frá lögum til að nota svefnlyf til að fækka varginum. Hákon Már Oddsson íbúi í Staðarhverfi býr í beinni sjónlínu við Leirvogshólma og er ósáttur við að undanþágan hafi verið veitt.

Hákon bendir á að Náttúrufræðistofnun Íslands hafi lagst gegn sílamáfadrápi með svefnlyfjum á þeim forsendum að "erlendis sé gerð krafa um að slíkar aðgerðir séu aðeins heimilaðar á svæðum þar sem hægt er að takmarka umferð almennings"

Eins og sést á þessum myndum sem Hákon hefur tekið síðustu daga er hólminn vinsælt leiksvæði og áningarstaður barna. Tvö lyf verða notuð og þeim verður blandað í brauðmola sem verða lagðir í hreiður mávanna, meðal annars þarna í hólmanum.

Þá bendir Hákon á að í skýrslu um fækkun sílamáfa hafi fuglafræðingurinn sem stýrir tilrauninni, Arnór Sigfússon, hafi sjálfur skrifað að þótt fækkað verði í stofni sílamáfa þá verði áfram ágangur máfa við tjörnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×