Vaxandi fjárfestingartengsl við Indland 30. júní 2007 03:30 Indverski fjármálaráðherrann P. Chidambaram og íslenskur starfsbróðir hans, Árni Mathiesen, takast í hendur eftir undirritun samningsins um gagnkvæma vernd fjárfestinga í fjármálaráðuneytinu í gær. Með á myndinni er Mahesh Sachdev, sendiherra Indlands í Ósló. fréttablaðið/Anton
Fjármálaráðherra Indlands sér fyrir sér að viðskiptatengsl Íslands og Indlands, einkum og sér í lagi á sviði fjárfestinga, fari hraðvaxandi á næstu árum. Hann hvetur Íslendinga til að íhuga fjárfestingar í indverskum sjávarútvegi. Indverski fjármálaráðherrann, P. Chidambaram, var staddur hér á landi í gær í boði Árna Mathiesen fjármálaráðherra til að undirrita samning um gagnkvæma vernd fjárfestinga. Báðir ráðherrar binda vonir við að samningurinn muni ýta enn undir ört vaxandi viðskiptatengsl landanna. Chidambaram lýsir ánægju með þær fjárfestingar sem íslensk fyrirtæki hafa þegar ráðist í á Indlandi, svo sem Actavis og Sæplast. En hann ráðleggur Íslendingum að íhuga fjárfestingar í indverskum sjávarútvegi. Indland með sinni gríðarlöngu strandlengju og gjöfulu fiskimið bjóði þar upp á mikil tækifæri og íslenskur sjávarútvegur sé jú sá þróaðasti í heimi. Spurður um mat sitt á horfunum í viðræðunum innan Heimsviðskiptastofnunarinnar, WTO, um aukið frelsi í alþjóðaviðskiptum segir ráðherrann að sökin á því að ekki hafi náðst árangur í þeim viðræðum liggi ekki hjá Indverjum né þróunarlöndunum yfirleitt. „Það er ekki við okkur að sakast að hvorki hafi gengið né rekið í WTO-viðræðunum. Reyndar hefur Indland reynt að hafa forystu fyrir þróunarlöndunum að ná samkomulagi. En þróuðu löndin verða að gera sér grein fyrir að landbúnaður er viðkvæmt mál. Fyrir Bandaríkin og mörg lönd í Evrópu kann landbúnaður að snúast um kaupsýslu og viðskipti. Fyrir indverska bændur er þetta spurning um lífsafkomu,“ segir ráðherrann. „Það eru um 115 milljónir fjölskyldna, um 600 milljónir manna, sem eiga afkomu sína undir landbúnaði í landinu, svo að það segir sig sjálft að við verðum að gæta þess að ganga ekki of nærri þeim atvinnuvegi.“ Þess vegna verði Vesturlönd að sjá að dragi þau ekki verulega úr niðurgreiðslum í landbúnaði, bæði til framleiðslu og útflutnings, verði ekki hægt að ná samkomulagi um alþjóðviðskipti með landbúnaðarafurðir. Spurður um tengsl Indlands við hitt hraðhagvaxtar-risaríkið í Asíu, Kína, segir hann þau vera góð. Viðskiptin milli þeirra aukist um fimmtíu prósent á ári og nemi nú um átján milljörðum Bandaríkjadala. Báðar ríkisstjórnir séu staðráðnar í að ýta undir frekari viðskipti og láta landamæradeiluna sem þær eiga enn í ekki spilla fyrir því. Chidambaram getur þess að eins og er sé Evrópusambandið stærsti viðskiptaaðili Indlands og Bandaríkin stærsta staka viðskiptalandið. „En ég get ekki útilokað að viðskiptin við Kína muni fara fram úr öðru hvoru eða hvoru tveggja, því þau vaxa með svo miklum hraða.“
Tengdar fréttir Fer fyrir efnahagsumbótum Palaniappam Chidambaram hefur gegnt fjármálaráðherraembættinu í Indlandsstjórn síðan í maí 2004. Hann hefur þó áður setið í stjórninni, var meðal annars fjármálaráðherra 1996-1998. 30. júní 2007 03:30 Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Fleiri fréttir „Þessi samningur var fullkomlega óboðlegur“ Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Sjá meira
Fer fyrir efnahagsumbótum Palaniappam Chidambaram hefur gegnt fjármálaráðherraembættinu í Indlandsstjórn síðan í maí 2004. Hann hefur þó áður setið í stjórninni, var meðal annars fjármálaráðherra 1996-1998. 30. júní 2007 03:30