Innlent

Minningarathöfn um Einar Odd

Minningarathöfn verður í Hallgrímskirkju í dag um Einar Odd Kristjánsson alþingismann, sem varð bráðkvaddur í síðustu viku. Sérstakt aukablað með minningargreinum um Einar Odd fylgir Morgunblaðinu í dag.

Einar Oddur Kristjánsson fæddist 26. desember 1942 á Flateyri og varð bráðkvaddur í fjallgöngu nærri heimabyggð sinni laugardaginn 14. júlí, sextíu og fjögurra ára gamall. Minningarathöfn verður um hann í Hallgrímskirkju klukkan þrjú í dag en hann verður jarðsunginn frá Flateyrarkirkju næst komandi laugardag. Sr. Hjálmar Jónsson jarðsyngur.

Það gustaði af Einari Oddi allt frá fyrstu afskiptum hans af stjórn- og þjóðmálum. Hann varð fyrst áberandi í landsmálum á árunum 1987 - 88 þegar Þorsteinn Pálsson þáverandi forsætisráðherra kallaði eftir ráðgjöf hans í efnahagsmálum og Einar Oddur lagði til s.k. niðurfærsluleið sem olli miklum deilum í stjórnmálum og varð e.t.v. ásamt öðru til þess að ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar sprakk.

Hlutverk hans í svo kölluðum þjóðarsáttasamningum varð hins vegar mikið árið 1990. Hann var þá formaður Vinnuveitendasambands Íslands sem ásamt Alþýðusambandi, Bændasamtökum, ríkisstjórn og fleirum, náðu tímamóta samningum sem fólu í sér hraða lækkun verðbólgu og stöðugleika í verðlagi og launum.

Þessa minnast margir af helstu forystumönnum þjóðarinnar í sérútgáfu Morgunblaðins á minningargreinum um Einar Odd í dag, enda flestir sammála um að þessir samningar hafi leitt til þess uppgangs sem verið hefur í efnahagsmálum þjóðarinnar frá þeim tíma. Geir H Haarde forsætisráðherra segir í minningargrein sinni í dag:

Hann sýndi það alla tíð með störfum sínum á vettvangi atvinnulífsins að honum var raunverulega annt um hag hins vinnandi manns.

Og seinna segir forsætisráðherra:

Hann hélt ófeiminn fram skoðunum sem fóru á skjön við viðtekna hugsun, ef því var að skipta, benti stöðugt á nýjar leiðir og var óragur að feta ótroðnar slóðir.

Einar Oddur var kjörinn á Alþingi árið 1995 og átti sæti þar til dauðadags. Í minningargreinum í Morgunblaðinu í dag er honum meðal annars þakkað fyrir hans þátt í því að núverandi stjórnarflokkar náðu saman um myndun ríkisstjórnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×