Munum standa vörð um hagsmuni landbúnaðarins 22. maí 2007 21:09
Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir það spennandi tilhugsun að taka við báðum ráðuneytunum en hann hefur verið sjávarútvegsráðherra í nærri tvö ár. Einar segir spennandi tíma fram undan í sjávarútvegsráðuneytinu, það þekki hann sem ráðherra þar. „Svo veit ég að það eru líka spennnandi tímar fyrir landbúnaðinn og við erum auðvitað staðráðin í því að standa vörð um hagsmuni landbúnaðarins um leið og við tryggjum það að við sjáum áframhaldandi framfarir í þeirri grein," segir Einar. Einar segir aðspurður að það liggi ekki nákvæmlega fyrir hvernig málum verði háttað varðandi ráðuneytin, þ.e. hvort þau verði sameinuð. Til að byrja með verði hann sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Einar segir aðspurður að í stjórnarsamstarfinu verði áhersla lögð á að standa vörð um hagsmuni sjávarútvegsins en einnig sé kveðið á um að skoða skuli mál sem snúi að byggðum landsins. „Ég held líka að það sé það sem er mest knýjandi og það er eitt af því sem við munum vinda okkur í að fara betur yfir," segir Einar. Samfylkingin hefur þrýst á um afnám tolla og viðskiptahindrana í landbúnaði og aðspurður segir Einar að það liggi fyrir í stjórnarsáttmálanum hvernig málum verði háttað. Staðinn verði vörður um hagsmuni landbúnaðarins en um leið sé stefnt að því að lækka matarverð í landinu. „Ég held að stóra málið sé það að við viljum hafa öflugan, íslenskan landbúnað og um það er enginn ágreiningur," segir Einar K. Guðfinnsson, nýr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira