Flugorrustur æfðar við Íslandsstrendur á Norðurvíkingi 14. ágúst 2007 18:51
Bandarískir og Norskir orrustuflugmenn börðust á F15 og F16 herþotum í lofthelgi Íslands í dag - en einungis í æfingaskyni. Loftvarnir Íslands voru æfðar suður af Reykjanesi á heræfingunni Norðurvíkingur í dag, en hún hefur tekist vel að sögn talsmanns æfingarinnar. Á heræfingunni er áhersla lögð á að samstilla þá aðila sem koma að vörnum landsins á hugsanlegum hættu- og ófriðartímum. Friðþór Eydal, talsmaður Norðurvíkings, segir að markmiðið með heræfingunni sé meðal annars að æfa flutning á liðsafla hingað þegar hætta steðjar að. Fyrirhugað er að æfingar af þessu tagi verði reglubundinn hluti í vörnum Íslands. Æfingin Norðurvíkingur skiptist upp í tvo aðskilda þætti, æfingu gegn hryðjuverkum og loftvarnaæfingu. Í loftvarnaæfingunni reynir mjög á orrustuþoturnar fimm sem hingað eru komnar, þrjár F-15 frá Bandaríkjunum og tvær F-16 frá Noregi. Þá fóru tvær KC-135 eldsneytisflugvélar Bandaríkjamanna létt með að dæla eldsneyti yfir í orrustuvélarnar á flugi suður af Reykjanesi þar sem stærstur hluti æfinganna fór fram í dag. Sérfræðingar Bandaríkjahers fullyrtu í morgun að afar mikilvægt væri að reyna þessa aðgerð sérstaklega þar sem illskeytt veður hér getur kallað á miklu meiri eldsneytisnotkun en við hefðbundnari kringumstæður. Talsmenn Bandaríkjahers sem hér eru staddir fullyrtu að mjög mikilvægt væri að flytja herliðin hingað til lands til að samstilla þau. Norðmenn eru hér með D-3 eftirlits- og kafbátaleitarflugvél og Atlantshafsbandalagið leggur til tvær AWAC´s-ratsjárflugvélar. Þá er danska varðskipið Tríton einnig við landið vegna hugsanlegra leitar- og björgunaraðgerða. Landhelgisgæslan leggur einnig til tvær björgunarþyrlur. Í æfingum gegn hugsanlegum hryðjuverkum eru 20 norskir sérsveitarmenn mættir hingað ásamt sex dönskum stallbræðrum sínum auk fimmtán manna frá Lettlandi. Jón Bjartmarz hjá Ríkislögreglustjóra segir þessa æfingu mjög mikilvæga fyrir íslenska sérsveitarmenn. Hundrað mótmæltu Norðurvíkingi
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira