Vegagerðin ber ábyrgð á mistökum varðandi nýja Grímseyjarferju 14. ágúst 2007 13:33
Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri segir að Vegagerðin ber ábyrgð á því hvernig málum er komið með endurnýjun á Grímseyjarferjunnar og þar með hann. Hann segist ekki ætla segja upp störfum vegna málsins enn sem komið er.Jón var gestur í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í ag og ræddi þar um svarta skýrslu Ríkisendurskoðunar um kaup og endurnýjun á Grímseyjarferju. Ríkisendurskoðun fer ófögrum orðum um vinnubrögðin og telur að undirbúningur verksins hafi verið ófullnægjandi og skoðun ferjunnar áður en hún var keypt hafi verið ábótavant. Þá gerir ríkisendurskoðandi athugasemdir við losarabrag á kostnaðaráætlunum og segir fjölmargt í störfum verksalans, sem er Vélsmiðja Orms og Víglundar, vera gagnrýnivert.Jón segir að mjög margar aðfinnslur séu í skýrslunni og að því leyti sé hún svört. „Það hefur sýnilega margt farið úrskeiðis og margt sem hefði betur mátt fara og við verðum að sjálfsögðu að draga lærdóm af því. Við tökum þær ábendingar og þær aðfinnslur sem koma fram í skýrslunni mjög alvarlega," segir Jón.Kristján L. Möller samgönguráðherra lýsti því yfir eftir að skýrslan var gerð opinber að hann ætlaði að láta gera stjórnsýsluúttekt á Vegagerðinni. Jón segist ekki kvíða henni. „Hann [samgönguráðherra] á góðan rétt á að gera það," segir Jón og bendir á að Vegagerðin hafi nýverið farið í gegnum stjórnsýsluúttekt.Aðspurður hver beri ábyrgð á þessum verkkaupum segir Jón að Vegagerðin geri það að sjálfsögðu. Spurður hvernig Vegagerðin og hann muni axla þá ábyrgð segir Jón: „Úr því sem komið er þá er það eina sem við getum gert er að taka þær ábendingar sem koma alvarlega, fara í gegnum þær að og reyna að tryggja að svona lagað komi ekki fyrir aftur," segir Jón og segist aðspurður ekki munu segja upp enn sem komið er.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Fleiri fréttir Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Sjá meira