Síminn tilkynnti aðeins tveimur fjölmiðlum um símasambandsleysi 14. ágúst 2007 11:48 MYND/Vilmundur
Upplýsingafulltrúi Símans segir að fyrirtækið hafi sent út tilkynningu þess efnis að símasambandslaust yrði í Bolungarvík strax á Sunnudag. Rafmagnið var tekið af í nótt og hefur bæjarstjórinn gagnrýnt að bæjarbúar hafi ekki verið látnir vita fyrr en síðdegis í gær. Tilkynningin frá Símanum var hins vegar aðeins send til Ríkisútvarpsins og á ritstjórn Bæjarins besta. Linda Björk Waage, upplýsingafulltrúi Símans, segir afar sjaldgæft að loka þurfi fyrir símasamband á heilu bæjarfélagi. „Þegar svona kemur upp á sendi ég tilkynningu um lokunina á fréttastofu Ríkisútvarpsins og í þessu tilfelli einnig á vestfirska fréttamiðilinn Bæjarns besta." Linda Björk bendir á að NMT símasamband hafi verið í bænum og hafi lögregla getað haft samskipti í gegnum það kerfi. Sambandsleysið varði í fimmtíu mínútur. Grímur Atlason bæjarstjóri Bolungarvíkur gagnrýndi Símann harðlega vegna málsins í gær og sagði ljóst að málinu væri ekki lokið af hálfu bæjaryfirvalda. Hann sagði einnig ljóst að fyrirtækið þyrfti að breyta verklagsreglum sínum þegar mál af þessu tagi koma upp. Linda segir að fyrirtækið hafi ekki heyrt í Bolvíkingum vegna málsins. Hún segir allan aðdraganda hafa verið unnin eftir fyrirfram skilgreindu ferli en að vel komi til greina að endurskoða það ferli í framtíðinni, gerist þess þörf.
Mest lesið Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Vaktin: „Kjarnorkuákvæðinu“ beitt á veiðigjöldin Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Erlent Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent Halda áfram að ræða veiðigjöldin Innlent Draga Dettifoss til Reykjavíkur Innlent Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Erlent Fleiri fréttir Vaktin: „Kjarnorkuákvæðinu“ beitt á veiðigjöldin Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Sjá meira