ÖBÍ fagnar stefnu stjórnvalda 6. október 2007 16:03
Á aðalfundi Öryrkjabandalags Íslands sem lauk í dag var einróma samþykkt ályktun þar sem stefnu stjórnvalda um umbætur í velferðakerfinu er fagnað. ÖBÍ leggur áherslu á að skipulagt verði eitt nýtt og betra almannatryggingakerfi fyrir alla landsmenn. Ályktun ÖBÍ: Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands fagnar yfirlýstri stefnu stjórnvalda um umbætur í velferðarkerfinu, þar sem áhersla skal lögð á einföldun almannatryggingakerfisins, einstaklingsmiðaða þjónustu, aukna endurhæfingu og virka samfélagslega þátttöku fatlaðra. ÖBÍ leggur áherslu á að skipulagt verði eitt nýtt og betra almannatryggingakerfi fyrir alla landsmenn. ÖBÍ hafnar alfarið hugmyndum sem fulltrúar Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hafa kynnt um sérstakt tryggingakerfi fyrir hluta landsmanna. Jafnframt varar ÖBÍ mjög við hugmyndum sem miða að einkavæðingu almannatrygginga, sem er augljós ávísun á mismunun. Undanfarin ár hafa skattar á fyrirtæki og á hæstu laun lækkað umtalsvert. Nú er tími lágtekjufólks kominn. ÖBÍ skorar á stjórnvöld að gera tillögur ÖBÍ um kjara-, skatta- og velferðarmál að sínum. ÖBÍ skorar ennfremur á Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins að koma í veg fyrir boðað afnám og niðurfellingu örorkulífeyris fyrir á annað þúsund öryrkja. Komi skerðing lífeyrissjóðanna til framkvæmda er ljóst að sjóðirnir hafa brugðist samtryggingarskyldum sínum og samfélagslegri ábyrgð. Þar með kynnu forsendur skylduaðildar að lífeyrissjóðunum að vera brostnar. Slíkar aðstæður hlytu að leiða til heildarendurskoðunar stjórnvalda á lögum um starfsemi lífeyrissjóðanna, þar sem hlutverk þeirra, skyldur og ábyrgð í íslensku samfélagi yrðu endurskilgreind.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira