Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur 11. júní 2007 11:46 MYND/AFP
R. Nicholas Burns aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna og náinn samstarfsmaður Condoleezzu Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun heimsækja Ísland þann 14. júní í boði Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra. Í tilkynningu frá bandaríska sendiráðinu kemur fram að Burns muni taka þátt í viðræðum um öryggis- og varnarmál sem eru hluti af samkomulagi um varnarmál sem íslensk og bandarísk stjórnvöld undirrituðu síðastliðið haust. „Auk samtala við íslenska ráðamenn um samstarf Íslendinga og Bandaríkjamanna í öryggis- og varnarmálum mun Burns ræða við þá um ástand heimsmálanna," segir ennfremur. Einnig mun hann eiga fund með Geir H. Haarde forsætisráðherra og heilsa upp á Sturlu Böðvarsson forseta Alþingis og skoða Alþingi Íslendinga í hans fylgd. „Burns hefur undanfarin tvö ár sem aðstoðarutanríkisráðherra verið helsti fulltrúi bandaríska utanríkisráðuneytisins í málum eins og kjarnorkudeilunni við Íran, deilunni um framtíð Kosovo, og í samstarfi Bandaríkjanna og Evrópu í stríðinu gegn hryðjuverkum," segir í tilkynningunni. Áður en hann var skipaður aðstoðarutanríkisráðherra var hann fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá NATO og sendiherra Bandaríkjanna í Grikklandi frá 1997 til 2001. Hann var einnig hann talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins á árunum 1995 til 1997. Þar áður var hann sérlegur ráðgjafi Bills Clintons og hafði einnig yfirumsjón með málefnum Rússlands, Úkraínu, Tyrklands og Kákasusríkjanna.
Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Fleiri fréttir Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sjá meira