Staða barna og unglinga styrkt með aðgerðaáætlun 13. júní 2007 13:19 MYND/GVA
Tillaga Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra til þingsályktunar um aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu barna og ungmenna fyrir árin 2007-2011 var samþykkt óbreytt á Alþingi í dag með 47 samhljóða atkvæðum. Skipaður verður samráðshópur fulltrúa ráðherra félagsmála, heilbrigðis- og tryggingamála, dóms- og kirkjumála, fjármála og menntamála til að stuðla að samræmingu og eftirfylgni aðgerðaáætlunarinnar undir forystu félagsmálaráðuneytisins. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir það mikið ánægjuefni að fyrsta þingmál hennar sem ráðherra hafi náð fram að ganga. „Mér er ofarlega í huga þakklæti til Alþingis fyrir þá breiðu samstöðu sem myndast hefur um að afgreiða þessa ályktun fljótt og vel á stuttu sumarþingi og fyrir þann góða vilja sem ég finn hjá ríkisstjórninni að hrinda þessari aðgerð í framkvæmd á kjörtímabilinu," segir Jóhanna. Meginatriði aðgerðaáætlunar til að styrkja stöðu barna og ungmenna verða að sögn félagsmálaráðherra að bæta afkomu barnafjölskyldna, meðal annars með hækkun barnabóta tekjulágra fjölskyldna, lengingu fæðingarorlofs, stuðningi við foreldra í uppeldisstarfi, eflingu forvarna og aðgerðum gegn vímuefnaneyslu. Einnig verður framfylgt aðgerðum í þágu barna og ungmenna með þroskafrávik, hegðunarerfiðleika og geðraskanir, langveikra barna og barna sem eiga við vímefnavanda að etja. Sömuleiðis verður ráðist í aðgerðir til að vernda börn og ungmenni gegn kynferðisbrotum og til að styrkja stöðu barna innflytjenda. „Ég fagna líka mjög því sem fram kemur í nefndaráliti félagsmálanefndar þar sem hvatt er til þess að húsnæðisvandi fátækra barnafjölskyldna verði skoðaður sérstaklega í aðgerðum til að sporna við fátækt", segir Jóhanna.
Mest lesið Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Sjá meira