Fjórar nýjar þulur á skjáinn 9. nóvember 2007 00:01 matthildur magnúsdóttir 26 ára nemi í lagadeild HR.
Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri Sjónvarpsins, hefur ráðið fjórar nýjar þulur til starfa á stöðinni úr hópi þeirra 103 sem sóttu um starfið. Dagskrárkynnarnir verða því alls sex talsins því tveir hætta störfum. Þær Anna Rún Frímannsdóttir, Sigríður Halldórsdóttir, Sigurlaug Jónsdóttir og Matthildur Magnúsdóttir bætast í hóp þeirra Evu Sólan og Katrínar Brynju Hermannsdóttur. Guðmundur F. Benediktsson og Guðrún Kristín Erlingsdóttir hætta. Þórhallur segir valið hafa verið erfitt en skemmtilegt. „Þessar fjórar voru þær hæfileikaríkustu." Hann segir tilviljun ráða því að hópinn skipi eingöngu konur. „Það voru átján strákar í hópi umsækjenda. Stelpurnar voru einfaldlega betri og við völdum út frá hæfileikum og getu. Þetta starf mun gefa möguleika á því að koma að annarri dagskrárgerð og umsækjendur voru valdir með tilliti til þess." Anna Rún var stödd í fríi í New York ásamt manninum sínum þegar Fréttablaðið náði tali af henni. „Ég er bara nýbúin að frétta af þessu sjálf," segir hún og hlær. „En ég hlakka til að takast á við starfið. Ég er förðunarfræðingur og hef unnið sem sminka í Sjónvarpinu í hálft ár." Anna Rún er einnig menntaður íslensku- og fjölmiðlafræðingur auk þess sem hún tók fréttamannapróf hjá Sjónvarpinu. „Mig langaði til þess að nýta háskólamenntunina en ætla að starfa samhliða sem sminka. Þulustarfið opnar líka ýmsar spennandi dyr." Sigríður er nemandi í félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst þar sem hún leggur stund á nám í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði. Hún er ekki alls ókunn störfum hjá Sjónvarpinu því hún starfaði sem aðstoðarfréttamaður á Fréttastofu Sjónvarps um árabil. „Ég ákvað eiginlega í gríni að sækja um. Ég bjóst ekkert við því að komast í gegn, sérstaklega eftir að ég frétti af því hversu margir sóttu um. Mig langaði bara að sjá hvað ég kæmist langt," segir hún og hlær. Sigríður reiknar ekki með að verða í vandræðum með að púsla saman vöktum í Sjónvarpinu og háskólanámi úti á landi. „Þetta eru ekki margar vaktir á mann, við erum svo margar. Annars kemur þetta bara allt í ljós." Sigurlaug hefur starfað sem flugfreyja hjá Icelandair í þrjú ár auk þess sem hún er í einkaþjálfaraskóla. Hún segist ekki ætla að hætta störfum sem flugfreyja. „Nei, ég tími því ekki," segir hún og hlær. „Þetta passar vel saman. Ég held að Sjónvarpið sé líflegur og skemmtilegur vinnustaður eins og flugið. Maður kynnist skemmtilegu fólki og fær að prófa eitthvað nýtt í leiðinni. Ég hef ekki gert neitt þessu líkt áður." Hún segir ráðninguna hafa komið sér skemmtilega á óvart. „Þórhallur hringdi bara áðan. Næsta skref er að mæta upp í Sjónvarp á þriðjudag þar sem við tekur þjálfun í raddbeitingu, framsögn og þess háttar." Matthildur er á þriðja ári í lagadeild Háskólans í Reykjavík. „Ég ætla í mastersnám næsta haust ef allt gengur upp. Þulustarfið er fínt með því. Ég er ekkert hætt í skóla." Hún segist meðal annars hafa sótt um starfið til að kynnast fólki. „Maður er dálítið einn og út af fyrir sig hérna í lagadeildinni. Sjónvarpið er tilvalinn vettvangur til þess að umgangast skemmtilegt fólk. Þetta er spennandi fyrirtæki og góður staður til þess að byrja á." sigrunosk@frettabladid.is
Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Fleiri fréttir Fjölskylda truflaði flutning á ísraelska atriðinu Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Sjá meira