Lífið

Frægir Íslendingar skrá sig á Facebook

Einar Bárðarson virðist vera nýr á Facebook því hann á bara átta vini enn sem komið er. Þeirra á meðal er Garðar Thór Cortes.
Einar Bárðarson virðist vera nýr á Facebook því hann á bara átta vini enn sem komið er. Þeirra á meðal er Garðar Thór Cortes.
Yfir sjö þúsund Íslendingar hafa skráð sig á vefsvæðinu Facebook en heildarfjöldi skráninga á heimsvísu er hátt í 40 milljónir. Þekktir Íslendingar sjá sér greinilega hag í þátttöku því þeir skipta tugum.

Facebook er eins og margir vita heimasíða þar sem hægt er að sanka að sér „vinum“ úr öllum áttum bæði með því að finna gamla félaga og stofna til nýrra vinasambanda. Aðeins eru liðin rúm þrjú ár frá stofnun síðunnar sem varð vinsæl á mettíma og fór á einu ári frá því að vera 60. vinsælasta síða Bandaríkjanna í 7. sætið.

Íslendingar hafa tekið Facebook opnum örmum. Meðal þekktra einstaklinga sem hafa ákveðið að taka þátt í Facebook ævintýrinu eru söng- og leikkonan Halla Vilhjálmsdóttir, Ruth Reginalds og umboðsmaður Íslands, sjálfur Einar Bárðarson. Sá síðastnefndi virðist þó tiltölulega nýbúinn að skrá sig því hann á enn sem komið er aðeins átta vini, fáa en góða. Þeirra á meðal er að sjálfsögðu stórtenórinn Garðar Thór Cortes sem er eins og allir vita á mála hjá Einari og umboðsskrifstofu hans í London.

Fyrrum idol-dómarinn og söngkonan Sigríður Beinteinsdóttir á bæði Ruth Reginalds og sjónvarpskonuna Svanhildi Hólm Valsdóttur að vinkonum á Facebook. Sömuleiðis hafa leikkonurnar Anita Briem og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir tengst þar vinaböndum en þær eru báðar búsettar í Los Angeles í Kaliforníu. Aníta heldur þó einnig tengslum við leikkonur á Íslandi því Halla Vilhjálmsdóttir er á listanum hennar.

Af öðrum sem hafa skráð sig má nefna leikarann Guðmund Inga Þorvaldsson og fyrrverandi sjónvarpsmanninn Fjalar Sigurðsson. Síðan virðist almennt eiga upp á pallborðið hjá leikurum og leikkonum því þær María Heba Þorkelsdóttir og Tinna Lind Gunnarsdóttir, eiginkona Garðars Thórs, eru líka með sitt eigið svæði á Facebook.

Af tónlistarfólki má auk þeirra Siggu og Ruthar nefna Vilhelm Anton Jónsson, Ágústu Evu Erlendsdóttir og Klöru Ósk Elíasdóttur en hún er sú eina af Nylonstúlkunum sem er skráð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.