Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segist ekki vanhæfur Sighvatur Jónsson skrifar 28. júlí 2007 18:52
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins hafnar því að vera vanhæfur í samkeppnismáli Mjólkursamsölunnar, Osta- og smjörsölunnar og Auðhumlu, eins og Mjólkursamsalan heldur fram. Forstjóri Mjólku óttast það að Mjólkursamsalan telji sig hafna yfir lög og starfsemi eftirlitsstofnanna. Mjólkursamsalan, Auðhumla og Osta- og smjörsalan hafa farið fram á það í Héraðsdómi Reykjavíkur að forstjóra Samkeppniseftirlitsins og öðrum starfsmönnum þess verði gert að víkja sæti við meðferð málsins. Er vísað til þess að skoðanir starfsmanna eftirlitsins á meintu samkeppnisbroti hafi komið fram opinberlega. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, gerir skýran greinarmun tvennu. Annars vegar áliti sem skilað var til landbúnaðarráðherra síðasta haust, um stöðuna í mjólkuriðnaðinum á Íslandi, og hins vegar þeirri rannsókn sem nú er í gangi. Hann segir að hvorki hann né aðrir starfsmenn Samkeppniseftirlitsins hafi tjáð sig um málið eða mjólkurmarkaðinn þannig að það leiði til vanhæfis. Páll Gunnar segir að sú umfjöllun sem Samkeppniseftirlitið hafi tekið þátt í um þennan markað hafi lotið að öðrum þáttum, það er samkeppnisstöðu á markaðnum almenn, sérstaklega því að fyrirtæki í mjólkuriðnaði eru að hluta til undanþegin samkeppnislögum. Ólafur M. Magnússon, forstjóri Mjólku, segist ekki hafa haft hugmyndaflug til að láta sér detta í hug þennan málaflutning Mjólkursamsölunnar. „Þetta er mjög dapurlegt og grafalvarlegt fyrir okkur sem erum í samkeppni við þetta fyrirtæki ef það telur sig hafið yfir samkeppnislög og eftirlitsstofnanir, sem eiga að skikka leikinn þegar eitthvað ber útaf," segir Ólafur.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Innlent Fleiri fréttir Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Sjá meira