NATO þotur sinna eftirliti í lofthelgi Íslands Sighvatur Jónsson skrifar 28. júlí 2007 18:48
Orrustuflugvélar á vegum Atlantshafsbandalagsins munu sinna reglubundnu eftirliti um lofthelgi Íslands, samkvæmt samkomulagi sem samþykkt hefur verið í fastaráði NATO. Fjórum sinnum á ári munu þotur bandalagsríkja fljúga hér eftirlitsferðir á kostnað ríkjanna sjálfra. Forsenda eftirlitsflugsins eru ratsjárstöðvarnar fjórar hér á landi, sem Íslendingar munu bera allan kostnað af. Geir Haarde forsætisráðherra setti málið sjálfur af stað á leiðtogafundi NATO í nóvember í fyrra, í kjölfar þess að bandaríska varnarliðið yfirgaf Ísland. Samkomulagið felur í sér að fjórum sinnum á ári verða sendar orrustuflugvélar frá ríkjum Atlantshafsbandalagsins til eftirlits íslensku lofthelginnar. Forsenda þess að hægt sé að halda úti slíku eftirlitsflugi er hið svokallaða íslenska loftvarnarkerfi - fjórar ratsjárstöðvar sem staðsettar eru á Miðnesheiði, Bolafjalli, Gunnólfsvíkurfjalli og Stokksnesi. Byggingarkostnaður ratsjárstöðvanna var einmitt greiddur af NATO á sínum tíma, en reksturinn var í höndum bandaríska flughersins þar til hann fór af landi brott. Kostnaðurinn af ratsjárstöðvunum nú mun hins vegar að verulegu leyti falla á Ísland ásamt kostnaði við aðstöðu á öryggissvæði á Keflavíkurflugvelli. Íslendingar greiða þannig fyrir húsnæði og gistingu flugmanna og tæknilega aðstoð á flugvellinum - en viðkomandi NATO-ríki munu bera kostnað af sjálfu fluginu. Forsætisráðherra segir að nokkur bandalagsríki hafi sýnt áhuga á lofteftirliti við Ísland, en telur ótímabært að nefna þau nú.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Fleiri fréttir Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Sjá meira