Harðorð kvörtun læknis vegna ofsaskrifa lögmanns 18. ágúst 2007 03:30 Fyrir úrskurðarnefnd Lögmannafélags Íslands liggur nú harðorð kvörtun frá lækni sem telur lögmann hafa vegið að sér á dónalegan og klámfenginn hátt.
Sérfræðingur í bæklunar- og handaskurðlækningum hefur sent harðorða kvörtun til úrskurðarnefndar lögmanna vegna bréflegra ummæla hæstaréttarlögmanns. Læknirinn segir þau vega mjög harkalega að starfsheiðri sínum... „á svo ósæmilegan, dónalegan og klámfenginn hátt, að það gengur út yfir öll mörk almennrar siðsemi og þau mörk sem lögmannalög og siðareglur lögmanna setja,“ eins og komist er að orði í kvörtunarbréfi hans. Tilefni umræddra bréfa eru örorkumatsstörf læknisins, Magnúsar Páls Albertssonar fyrir tryggingafélag, eftir að ökumaður hafði lent í slysi og krafist bóta af félaginu. Steingrímur Þormóðsson hrl., lögmaður ökumannsins, er ósáttur við vinnubrögð læknisins í málinu og yfir bréflegum ummælum hans kvartar læknirinn. Í kvörtunarbréfi læknisins segir meðal annars: „Ofstopi sá sem einkennir skrif lögmannsins er hins vegar slíkur að útilokað er annað en að kvarta til nefndarinnar. Hann vegur illilega að persónu minni, heiðarleika og starfsheiðri, eins og augljóst er við lestur meðfylgjandi bréfa. Þá er lögmaðurinn með afar ósæmilegar samlíkingar er hann líkir vinnubrögðum mínum við „Breiðavíkurmál hin síðari“ og er hann kallar mig „skökul vátryggingafélaganna“ sem með vinnu minni vinni tjónþolum óbætanlegt tjón. Þá eru einnig á víð og dreif í bréfunum fullyrðingar og dylgjur um vankunnáttu mína.“ Læknirinn krefst þess að úrskurðarnefnd Lögmannafélags Íslands láti í té rökstutt álit á því hvort sú háttsemi sem lýst er í kvörtunarbréfinu sé í samræmi við góða lögmannsháttu eða ekki og hvort hún brjóti ekki gegn siðareglum lögmanna. Í bréfi lögmannsins til úrskurðarnefndarinnar segir meðal annars að með því að vísa til Breiðavíkur sé verið að vísa til þess að farið sé illa með tjónþolana „með þessum tveggja lækna mötum með óafsakanlegum hætti“. „Þar er alls ekki átt við neitt kynferðislegt, eins og Magnús Páll á við með orðunum „dónalegan og klámfenginn hátt...gengur út yfir öll mörk almennrar siðsemi...“ í upphafi bréfs síns. Varðandi orðið skökull, þá er heldur ekki átt við kynfæri karlmanna,“ skrifar lögmaðurinn áfram, „og því ekki verið að líkja þeim læknum sem staðið hafa að tveggja lækna mötum við einhverja kynferðislega nauðgara á vegum tryggingafélaganna.“ Lögmaðurinn segir orðið „skökul“ notað yfir verkfæri eða vopn og vísar til þess þegar hann var ungur í sveit. Þá hafi gálgar á hestaheyvinnuvélum verið kallaðir sköklar og sagt sem svo: „Bittu taugina við skökulinn strákur.“ Þá hafi skökullinn verið bundinn við hestinn og aktygi hans. Lögmaðurinn mælist til við úrskurðarnefndina að hann hljóti ekki ámæli fyrir að skrifa á íslensku.
Mest lesið Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira