Gunnar Birgisson ætlar að kæra Mannlíf og Ísafold Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 14. júní 2007 14:52 Bæjarstjórinn ætlar að kæra Mannlíf og Ísafold. MYND/Hrönn
Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi ætlar að kæra umfjallanir tímaritanna Ísafoldar og Mannlífs en bæði blöðin hafa fjallað ítarlega um meint hneyklismál sem Gunnar er bendlaður við. Gunnar segir umfjöllun Mannlífs mestu lágkúru íslenskrar blaðamennsku og hann ætlar ekki að svara efnislega þeim ávirðingum sem á hann eru bornar í blaðinu. Lágkúra Í Mannlífi er farið vítt og breitt yfir feril Gunnars sem verktaka, þingmanns og bæjarstjóra og sagt frá meintri spillingu hans. „Þetta er ein mesta lágkúra sem maður hefur séð. Þessir menn sjóða þarna saman gamlar kjaftasögur sem ég ætla ekki að svara efnislega," segir Gunnar í samtali við Vísi. Hann hyggst hins vegar kæra umfjöllunina í Mannlífi og sömuleiðis umfjöllun Ísafoldar um tengsl hans við nektardansstaðinn Goldfinger. Ærusvipting „Tilgangur þessara manna er greinilega að svipta mig ærunni, en þetta hittir þá sjálfa fyrir."segir Gunnar. „Mér þykir reyndar merkilegt að þessir fjölmiðlar sem gefnir eru út undir verndarvæng auðhrings fái óárreittir að taka menn af lífi," segir Gunnar og á þar við aðkomu Baugs að útgáfu Mannlífs og Ísafoldar. „Ég veit ekki hvað ég hef gert þessum mönnum, ég er greinilega fyrir þeim." Veit ekki hvað Reyni gengur til Hann segist einnig undrast vinnubrögð Reynis Traustasonar, ritstjóra Mannlífs sem skrifar greinina ásamt Sigurði Boga Sævarssyni. „Ég hef aldrei haft neitt nema gott af þeim manni að segja og ég veit ekki hvað honum gengur til." Lögsókn í undirbúningi Gunnar segir lögsókn vera í undirbúningi. „Ég er nú ýmsu vanur en þetta gengur nærri fjölskyldu minni og ég sætti mig ekki við það. Það er því í vinnslu að kæra þessar greinar og það verður gert," segir bæjarstjórinn að lokum.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Sjá meira